{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfisráðherra hefst rjúpnaveiðitímabilið á morgun, 1. nóvember. Á þessari vertíð verður veiðin leyfð frá 1. nóvember - 4. desember. Heimilt er að veiða rjúpu frá og með föstudegi til og með þriðjudags, frá klukkan 12 þá daga sem veiði er heimil og skal veiði eingöngu standa yfir á meðan að birtu nýtur. Ítrekað er að sölubann er á rjúpum og á það jafnt við um sölu til endursöluaðila og annarra.\r\n\r\nRáðlögð veiði úr stofninum á þessu ári er um 26 þúsund fuglar, en stærð rjúpnastofnsins hefur dregist saman síðustu ár. Biðlar ráðherra til veiðimanna að sýna hófsemi í veiðum í ljósi viðkomubrests á Norðausturlandi og Vesturlandi, en slæmt tíðarfar í vor og sumar er líklegasta skýringin á viðkomubrestinum. Þá hvetur ráðherra veiðimenn til þess að flykkjast ekki á Norðausturlandið til veiða og eru veiðimenn á því svæði hvattir sérstaklega til að sýna hófsemi. Ráðuneytið hvetur veiðimenn til að kynna sér takmarkanir á veiðum á friðlýstum svæðum og eru þeir hvattir til góðrar umgengi um náttúru landsins.\r\n\r\nLoks ber að hvetja veiðimenn til að búa sig rétt út til veiða, hvað fatnað og öryggisbúnað varðar, láta vita af ferðaáætlun sinni og kanna vel veðurspár.",
"innerBlocks": []
}
Rjúpnaveiðitímabilið hefst á hádegi á morgun - Skessuhorn