Fréttir

true

Karl Ásgeirsson tekur við sem viðskiptastjóri Baader

Eins og fram hefur komið hafa Baader Ísland og Skaginn 3X sameinað krafta sína á Íslandi. Verða starfsstöðvar fyrirtækisins allar reknar undir nafni Baader frá og með næstu áramótum, þar með talið á Akranesi. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Karl Ásgeirsson hefur tekið við sem viðskiptastjóri Baader á Íslandsmarkaði og verður sem slíkur…Lesa meira

true

Sykurlaus Opal með sykri

Matvælastofnun varar neytendur við einni framleiðslulotu af sykurlausum svörtum Opal frá Nóa og Síríusi sökum þess að mistök voru gerð við pökkun. Vörunni var dreift í verslanir um land allt. Í þessari framleiðslulotu var sykurlausum svörtum Opal blandað rauðum Opal með sykri. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík stöðvað sölu vörunnar og innkallað…Lesa meira

true

Inga Björk tók sæti á Alþingi

Borgnesingurinn Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir tók sæti á Alþingi í liðinni viku þegar hún fór inn sem varaþingmaður fyrir Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi. Inga Björk flutti til Hafnarfjarðar fyrir fjórum árum og tók 3. sæti á lista flokksins í Kraganum fyrir síðustu kosningar en er hún nú annar varaþingmaður í kjördæminu. Inga Björk hefur í mörg…Lesa meira

true

Bleikar messur síðasta sunnudag

Síðasta sunnudag voru haldnar bleikar messur í Borgarneskirkju og Akraneskirkju. Bleika messan í Borgarneskirkju var í samstarfi Borgar-, Reykholts- og Stafholtsprestakalla. Séra Anna Eiríksdóttir, séra Hildur Björk Hörpudóttir og séra Heiðrún Helga Bjarnadóttir Back stjórnuðu athöfninni og var markmiðið að eiga notalega kvöldstund saman í kirkjunni. Lesið var úr ljóðabókinni Meinvarpi eftir séra Hildi Eir…Lesa meira

true

Hallgrímsdagar að hausti haldnir í fyrsta sinn

Í ár verða í fyrsta sinn haldnir Hallgrímsdagar í Saurbæ í Hvalfirði. Þá verður menningardagskrá í Hallgrímskirkju í Saurbæ dagana 27. -30. október, í tilefni af ártíð Hallgríms Péturssonar (1614 – 1674) en dánardagur hans er 27. október. Ekki er vitað með vissu hver er fæðingardagur Hallgríms og því fær dánardagur hans enn meira vægi.…Lesa meira

true

Forsetahjón á ferð um Vesturland

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og frú Eliza Reid voru á ferð í Borgarfirði í liðinni viku. Í för með þeim voru finnsku forsetahjónin, Sauli Niinistö og Jenni Haukio. Ekið var um Kaldadal frá Þingvöllum, þar sem haldið var á Langjökul og farið ofan í Into the glacier ísgöngin. Leiðsögumaður í ferðinni var Sif Pétursdóttir…Lesa meira

true

Running Tide ræður inn stjórnendur á Akranesi og Grundartanga

Running Tide hefur ráðið inn þrjá nýja stjórnendur en fyrirtækið er með starfsemi á Breið á Akranesi, á Grundartanga og í Reykjavík en það var stofnað fyrir fimm árum síðan í Bandaríkjunum. Fyrirtækið þróar og nýtir tækni og aðferðir sem örva náttúruleg ferli sjávarins í að grípa, binda, og geyma kolefni til langs tíma en…Lesa meira

true

Vökudagar verða settir á Akranesi á morgun

Á morgun fimmtudaginn 27. október klukkan 17:00, verða Vökudagar á Akranesi settir í Tónlistarskólanum á Akranesi. Þar afhendir formaður menningarmálanefndar menningarverðlaun Akraneskaupstaðar en einnig verða árlegar umhverfisviðurkenningar afhentar. Að setningu lokinni verður líkt og síðustu ár listaganga á Akranesi. Í ár eru það 15 listamenn um allan bæ með sýningar eða opnar vinnustofur sem taka…Lesa meira

true

Útgáfu Árbókar Akurnesinga hefur verið hætt

Tveir áratugir eru síðan Árbók Akurnesinga hóf göngu sína og á síðasta ári kom 20. bindi ritsins út. Nú liggur hins vegar fyrir að útgáfu Árbókarinnar verður hætt. „Kristján Kristjánsson ritstjóri og Margrét Þorvaldsdóttir útgefandi þakka greinahöfundum, áskrifendum og auglýsendum órofa tryggð öll þau ár sem auðnaðist að gefa út Árbók Akurnesinga,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Heimsókn nemenda og kennara FSN til Tékklands

Sunnudaginn 18. september síðastliðinn héldu 12 nemendur úr Fjölbrautaskóla Snæfellinga auk þriggja kennara, til Frenštát pod Radhoštěm í austurhluta Tékklands til að heimsækja kollega sína úr Gymnázium a Střední průmyslová škola elektrotechniky a informatiky. Heimsóknin var liður í verkefni sem skólarnir tveir hafa unnið saman og nefnist „Food for thought,“ og snýr að því að…Lesa meira