"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Matvælastofnun varar neytendur við einni framleiðslulotu af sykurlausum svörtum Opal frá Nóa og Síríusi sökum þess að mistök voru gerð við pökkun. Vörunni var dreift í verslanir um land allt. Í þessari framleiðslulotu var sykurlausum svörtum Opal blandað rauðum Opal með sykri. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík stöðvað sölu vörunnar og innkallað frá neytendum.\r\n\r\nInnköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:\r\n\r\nVörumerki: Opal\r\n\r\nVöruheiti: Sykurlaus Opal með saltlakkrísbragði\r\n\r\nGeymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 12.01.2024\r\n\r\nLotunúmer: L1932\r\n\r\nNettómagn: 100 g\r\n\r\nStrikamerki: 5690576303244\r\n\r\nFramleiðandi: Nói Síríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík\r\n\r\nDreifing: Verslanir um land allt.\r\n\r\nNeytendur sem keypt hafa vöruna, sérstaklega þeir sem þurfa að varast sykur, að neyta hennar ekki, farga eða skila vörunni til næstu verslunar.",
"innerBlocks": []