Leikskólabörn á Teigaseli voru með í listagöngu Vökudaga 2020, en þessi sýning hét Leikur með form og mynstur. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Vökudagar verða settir á Akranesi á morgun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á morgun fimmtudaginn 27. október klukkan 17:00, verða Vökudagar á Akranesi settir í Tónlistarskólanum á Akranesi. Þar afhendir formaður menningarmálanefndar menningarverðlaun Akraneskaupstaðar en einnig verða árlegar umhverfisviðurkenningar afhentar. Að setningu lokinni verður líkt og síðustu ár listaganga á Akranesi. Í ár eru það 15 listamenn um allan bæ með sýningar eða opnar vinnustofur sem taka á móti á gestum. Þá taka allir grunn- og leikskólarnir þátt í listagöngunni með einum eða öðrum hætti. Í dagskrá Vökudaga sem aðgengileg er inni á skagalif.is má sjá hvar sýningarnar og vinnustofurnar eru til húsa.",
  "innerBlocks": []
}
Vökudagar verða settir á Akranesi á morgun - Skessuhorn