
Starfsfólk Hótel Húsafells ásamt forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni. Ljósm. Riikka Hietajärvi.
Forsetahjón á ferð um Vesturland
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og frú Eliza Reid voru á ferð í Borgarfirði í liðinni viku. Í för með þeim voru finnsku forsetahjónin, Sauli Niinistö og Jenni Haukio. Ekið var um Kaldadal frá Þingvöllum, þar sem haldið var á Langjökul og farið ofan í Into the glacier ísgöngin. Leiðsögumaður í ferðinni var Sif Pétursdóttir en hún sýndi m.a. merkingar við ísrönd jökulsins sem sýna hve mikið jökullinn hefur hopað á liðnum árum. Þá hélt hópurinn til Húsafells þar sem boðið var upp á hádegisverð. Hótelið gaf finnsku forsetahjónunum bókina um Pál á Húsafelli en fékk finnska hönnunarskál að gjöf á móti. Hópurinn skoðaði í framhaldinu Hraunfossa og Barnafossa áður en haldið var aftur sem leið lá til Reykjavíkur.\r\n\r\n \r\n\r\n[caption id=\"attachment_57374\" align=\"alignnone\" width=\"873\"]<img class=\"wp-image-57374 \" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/10/Finnsku-forsetahjonin-ferdudust-um-Vesturland_1-600x424.jpg\" alt=\"\" width=\"873\" height=\"617\" /> Finnsku forsetahjónin, Sauli Niinistö og Jenni Haukio, ásamt Guðna Th. Jóhannessyni og Elizu Reid, forsetahjónum Íslands. Mynd þessi er tekin á þeim stað sem jökulrönd Langjökuls var árið 2020. Síðan þá hefur jökullinn hopað talsvert, en fjær sést móta fyrir núverandi jökulrönd. Ljósm. Riikka Hietajärvi.[/caption]",
"innerBlocks": []
}