
Hallgrímskirkja í Saurbæ.
Hallgrímsdagar að hausti haldnir í fyrsta sinn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í ár verða í fyrsta sinn haldnir Hallgrímsdagar í Saurbæ í Hvalfirði. Þá verður menningardagskrá í Hallgrímskirkju í Saurbæ dagana 27. -30. október, í tilefni af ártíð Hallgríms Péturssonar (1614 – 1674) en dánardagur hans er 27. október. Ekki er vitað með vissu hver er fæðingardagur Hallgríms og því fær dánardagur hans enn meira vægi.\r\n\r\nÞann 27. október í fyrra var fræðsluskilti um Hallgrím Pétursson og Guðríði Símonardóttur, konu hans, afhjúpað á hlaðinu í Saurbæ. Margrét Bóasdóttir, söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar og ábúandi í Saurbæ segir að í kjölfarið á því hafi komið upp sú hugmynd að vera með árlega dagskrá í kirkjunni, í kringum þennan dag. „Við ræddum það, sóknarnefndin og prestarnir, að það væri ánægjulegt að nota fleiri tækifæri til að halda minningu Hallgríms á lofti og þá lagði ég til hvort við ættum ekki að stefna að því að vera með árlega dagskrá í kringum þennan dag. Núna erum við svo að gera þetta í fyrsta sinn og ætlum að láta þetta heita Hallgrímsdaga, eða jafn vel Hallgrímsdaga að hausti,“ segir Margrét og bætir við að Hallgrímsdagar að hausti sé jafn vel betra heiti því að í Dymbilviku er einnig dagskrá og á Föstudaginn langa eru Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir í heild sinni, það séu því fleiri dagar á ári þar sem Hallgríms er minnst.\r\n\r\nTorfi K. Stefánsson Hjaltalín vinnur nú að því að rita ævisögu Hallgríms og mun hann lesa upp úr óbirtu verki sínu á morgun, fimmtudagskvöldið 27. október og svara spurningum. Þá mun Benedikt Kristjánsson tenór syngja einsöng og einnig með kirkjukór Saurbæjarprestakalls hins forna þar sem Zsuzsanna Budai er stjórnandi.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"full\" ids=\"57341,57342\"]\r\n\r\nÁ laugardaginn kl. 16 verða tónleikar í kirkjunni, þar er það tríóið Sírajón sem mun flytja íslenska og erlenda tónlist. Tríóið skipa Laufey Sigurðardóttir á fiðlu, Einar Jóhannesson á klarinett og Anna Áslaug Ragnarsdóttir á píanó. „Nafnið á tríóinu er tilkomið af því að þau þrjú eru öll afkomendur séra Jóns í Reykjahlíð, það er mjög skemmtilegt og munu þau að spila í um klukkustund,“ segir Margrét. Aðgangseyrir á tónleikana eru 2.500 krónur.\r\n\r\nÁ sunnudaginn verður svo kvöldmessa kl. 20.00 þar sem Benedikt Kristjánsson tenór, kór Saurbæjarprestakalls og Zsusanna Budai sjá um tónlista. Sr. Kristján Valur Ingólfsson predikar en sr. Þóra Sigurðardóttir sér um messuna.\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}