Inga Björk tók sæti á Alþingi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Borgnesingurinn Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir tók sæti á Alþingi í liðinni viku þegar hún fór inn sem varaþingmaður fyrir Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi. Inga Björk flutti til Hafnarfjarðar fyrir fjórum árum og tók 3. sæti á lista flokksins í Kraganum fyrir síðustu kosningar en er hún nú annar varaþingmaður í kjördæminu. Inga Björk hefur í mörg ár vakið athygli á málefnum fatlaðs fólks og flutti hún jómfrúarræðu sína þess efnis. Hún vakti þar athygli á hagsmunum fatlaðs fólks í hamfara- og neyðarástandi og hvatti stjórnvöld til að hefja þegar í stað vinnu til að tryggja að enginn verði skilinn eftir við erfiðar aðstæður.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"large\" ids=\"57290\"]\r\n\r\n<strong>Nördabarn sem fylgdist með Alþingi í æsku</strong>\r\n\r\nInga Björk starfar sem upplýsingafulltrúi Þroskahjálpar og er sjálf í hjólastól. Málefni fatlaðs fólks snerta hana því djúpt. Hún segist lengi hafa haft áhuga á stjórnmálum og tekið virkan þátt frá 17 ára aldri en í dag er hún 29 ára. ,,Ég er búin að vera í pólitík síðan ég byrjaði að taka þátt í starfi Samfylkingarinnar í Borgarbyggð þegar ég var 17 ára. Ég er þess vegna ein af þeim sem kemur úr útungunarvél stjórnmálaflokkanna má segja. Ég er fyrst núna að taka sæti á Alþingi eftir að hafa verið viðloðandi stjórnmál í þó nokkur ár. Mér finnst svolítið merkilegt að koma þarna inn þar sem þetta er stóra sviðið í pólitíkinni og það er mjög gaman að fá vinnunna á Alþingi beint í æð. Ég er svona ,,nördabarn“ sem fylgdist með Alþingi í æsku en þetta er allt öðruvísi en ég hélt. Þingmenn fá mikinn stuðning sem er mjög flott og allt gert til að aðstoða fólk við að koma málum sínum að,“ segir Inga Björk í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\n<strong>Mikilvægt að þekkja málefnin á eigin skinni</strong>\r\n\r\nInga Björk segir upplifun sína af Alþingi jákvæða en hún fékk góða aðstoð við að móta mál sín. ,,Þingmenn eru allir mjög almennilegir, fólk í öllum flokkum tók vel á móti mér, margir varaþingmenn komu inn þessa vikuna vegna utanlandsferða hjá einhverjum nefndum. Ég var búin að undirbúa mig vel og kom inn með þrettán mál tilbúin. Það var gaman að fá hvatningu frá eldri þingmönnum eftirá, ég hafði greinilega nýtt þessa viku vel. Ég tala almennt fyrir mannréttindamálum, málefnum fatlaðra og loftlagsmálum. Ég hef fengið ótrúlega góð viðbrögð við mínum málum en ég er svona týpa sem finnst svo mikið óréttlæti í samfélaginu þannig ég var búin að búa til langan lista sem mér finnst mikilvægt að við horfum á og bætum í samfélaginu. Ég fékk aðstoð frá starfsfólki Alþingis og þingmönnum til að móta málin. Jaðarsettir hópar tóku eftir að þarna er komin manneskja sem talar fyrir þeirra málefnum en mér finnst mikilvægt að hafa fólk sem þekkir þau á eigin skinni. Þingmenn þurfa að endurspegla svo stóran hóp og þess vegna finnst mér mikilvægt að það sitji fjölbreyttur hópur fólks á þingi.“\r\n\r\n<strong>Þakklát fyrir að komast að ræðustólnum</strong>\r\n\r\nIngu Björk var boðið í heimsókn í Alþingishúsið fyrir innkomuna til að taka út aðgengi fyrir hjólastól hennar. ,,Aðgengi fyrir hjólastól í Alþingishúsinu er bara prýðilegt. Það hafa verið fatlaðir varaþingmenn áður og það eru þingmenn starfandi núna sem notast við hjálpartæki. Mér var boðið í heimsókn mánuði áður til að taka út húsnæðið áður en ég kæmi inn svo hægt væri að laga það sem þyrfti að laga. Freyja Haraldsdóttir gat t.d. ekki notað ræðustólinn vegna aðgengis til að byrja með en aðgengið var svo bætt í kjölfarið svo ég hef henni að þakka að hafa komist upp að ræðustólnum,“ segir Inga Björk að endingu.\r\n\r\n&nbsp;\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Inga Björk tók sæti á Alþingi - Skessuhorn