Borgarneskirkja er bleik þessa dagana.

Bleikar messur síðasta sunnudag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<em>Síðasta sunnudag voru haldnar bleikar messur í Borgarneskirkju og Akraneskirkju.</em>\r\n\r\nBleika messan í Borgarneskirkju var í samstarfi Borgar-, Reykholts- og Stafholtsprestakalla. Séra Anna Eiríksdóttir, séra Hildur Björk Hörpudóttir og séra Heiðrún Helga Bjarnadóttir Back stjórnuðu athöfninni og var markmiðið að eiga notalega kvöldstund saman í kirkjunni. Lesið var úr ljóðabókinni Meinvarpi eftir séra Hildi Eir Bolladóttur. Safnað var fyrir Krabbameinsfélag Borgarfjarðar og mættu um eitt hundrað manns í messuna. Steinunn Árnadóttir lék á orgel, Benjamín Fjeldsted á gítar og kór Borgarneskirkju leiddi sálmasöng.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"full\" ids=\"57360\"]\r\n\r\n&nbsp;\r\n\r\nAkraneskirkja var þétt setin og þurfti að bæta við stólum svo allir fengju sæti. Kirkjugestir voru nær 200, af öllum kynjum, og segir sr. Ólöf Margrét Snorradóttir greinilegt að allir láti sig þetta verkefni varða, það er Bleiku slaufuna og árveknisátak Krabbameinsfélagsins.\r\n\r\nFormið á messunni var töluvert öðruvísi en hefðbundið er en það voru til dæmis einungis kvenraddir í kórnum. Það var kvennakórinn Ymur ásamt konum úr Kór Akraneskirkju og Saurbæjarprestakalls sem sungu fyrir kirkjugesti. „Það má segja að það hafi verið 100 bleikir tónar í messunni þetta kvöld. Það voru allir í bleiku og það var mikil gleði, von og þakklæti í loftinu þótt undirtónninn væri alvarlegur,“ segir sr. Ólöf en hún leiddi messuna. Tinna Grímarsdóttir var ræðumaður kvöldsins. Hún er slaufuberi Krabbameinsfélags Akraness í ár og segir Ólöf að einlæg frásögn hennar hafi hreyft við öllum en þar var líka áberandi hvað vonin er mikilvægt verkfæri, sem og æðruleysið.\r\n\r\nUndir lok messunnar lásu konur úr kórnum almenna kirkjubæn þar sem beðið var sérstaklega fyrir krabbameinsgreindum og aðstandendum þeirra og fyrir heilbrigðisþjónustu en dagur heilbrigðisþjónustu var í gær.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"full\" ids=\"57362\"]",
  "innerBlocks": []
}
Bleikar messur síðasta sunnudag - Skessuhorn