Karl tekur við góðu búi úr hendi Jochums Ulrikssonar sem látið hefur af störfum.

Karl Ásgeirsson tekur við sem viðskiptastjóri Baader

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eins og fram hefur komið hafa Baader Ísland og Skaginn 3X sameinað krafta sína á Íslandi. Verða starfsstöðvar fyrirtækisins allar reknar undir nafni Baader frá og með næstu áramótum, þar með talið á Akranesi. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Karl Ásgeirsson hefur tekið við sem viðskiptastjóri Baader á Íslandsmarkaði og verður sem slíkur aðal tengiliður við íslenskar vinnslur. Hann tekur við starfi Jochums Ulrikssonar sem látið hefur af störfum hjá fyrirtækinu. Karl hefur unnið hjá Skaganum 3X í yfir 15 ár.\r\n\r\nÍ tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að reynsla Karls af íslenskum sjávarútvegi gefi honum góða innsýn í þær áskoranir sem innlendir vinnsluaðilar standa frammi fyrir. Hann gjörþekkir vinnslulausnir Skagans 3X og Baader og hvernig þær geta skilað útvegsaðilum meiri vinnsluhraða, betri nýtingu og aukinni framlegð.",
  "innerBlocks": []
}