Frá vinstri: Ingólfur Bragi Gunnarsson, Íris Mýrdal Kristinsdóttir og Daði Snær Skúlason. Ljósm. aðsend.

Running Tide ræður inn stjórnendur á Akranesi og Grundartanga

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Running Tide hefur ráðið inn þrjá nýja stjórnendur en fyrirtækið er með starfsemi á Breið á Akranesi, á Grundartanga og í Reykjavík en það var stofnað fyrir fimm árum síðan í Bandaríkjunum. Fyrirtækið þróar og nýtir tækni og aðferðir sem örva náttúruleg ferli sjávarins í að grípa, binda, og geyma kolefni til langs tíma en hluti lausnarinnar sem Running Tide vinnur að byggist á að rækta stórþörunga sem binda kolefni í stórum stíl á sérhönnuðum kolefnisflothylkjum á hafi úti. Nýverið bárust einmitt tveir skipsfarmar af spæni til Grundartanga, en það er hráefni sem notað verður til að framleiða fyrrgreind kolefnishylki. Þau verða síðan dregin á haf út, binda þar kolefni og sökkva að endingu á sjávarbotn.\r\n\r\nDaði Snær Skúlason er ráðinn til að leiða þróun og uppbyggingu á framleiðslu þessara flothylkja á Íslandi og sér um starfsstöðina á Grundartanga. Ingólfur Bragi Gunnarsson er ráðinn til að leiða þörungarækt og uppbyggingu líftækniþróunar fyrirtækisins og mun sjá um að byggja upp þá starfsemi á Akranesi. Íris Mýrdal Kristinsdóttir er nýr verkefnastjóri rannsókna og mun hún flakka á milli starfsstöðva.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"full\" ids=\"57309\"]",
  "innerBlocks": []
}
Running Tide ræður inn stjórnendur á Akranesi og Grundartanga - Skessuhorn