Fréttir

true

Sveitarfélög með færri en þúsund íbúa greiða meira

Guðmundur Kristján Óskarsson, dósent við Háskólann á Akureyri, hefur síðustu misseri unnið að rannsókn um úrgangsmál á Íslandi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að fámenn sveitarfélög, með þúsund íbúa og færri, greiða margfalt meira fyrir hirðu úrgangs en þau stærri og fjölmennari. Þar segir að árið 2020 hafi minni sveitarfélög greitt að meðaltali 56.000 kr.- á ári…Lesa meira

true

Ungmennakórinn Schaumberger syngur á Akranesi

Ungmennakórinn Schaumberger frá Bückeburg í Þýskalandi, kemur í heimsókn til Akraness þann 20. október og býður til tónleika í safnaðarheimilinu Vinaminni. Sérstaða þessa kórs er óvenjuleg raddsetning þar sem tenórröddin er sungin af djúpum altröddum, sem gefur kórnum einstaklega mjúkan og fallegan hljóm. Kórinn hefur á undanförnum árum haldið tónleika víða um heim, í Mið-Evrópu,…Lesa meira

true

,,Mamma reið út þangað til hún var gengin átta mánuði á leið með mig“

Litið í kaffi til Þórdísar Fjeldsted Þorsteinsdóttur reiðkennara, tamningakonu og rútubílstjóra Þórdís Fjeldsted Þorsteinsdóttir er reiðkennari og tamningakona búsett að Ölvaldsstöðum í Borgarfirði. Þórdís sleit bernskuskónum á Ölvaldsstöðum en foreldrar hennar, Guðrún Fjeldsted og Þorsteinn Guðlaugsson keyptu Ölvaldsstaði 4 í kringum árið 1980. Þau sinntu tamningum og þjálfun hrossa auk þess að reka reiðskóla og…Lesa meira

true

Opin vika í Tónlistarskólanum á Akranesi endar í dag

Vikuna 10-14 október var opin vika í Tónlistarskólanum á Akranesi í tilefni 80 ára afmælis Akraneskaupsstaðar. Bauðst nemendum þá að kynnast nýjum hljóðfærum, mismunandi tónlistarstílum og miðlunarmöguleikum í hinum ýmsu smiðjum og fyrirlestrum. Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri segir opnar vikur mikilvægar fyrir nemendur en þar býðst þeim tækifæri til að prófa sig áfram og kynnast…Lesa meira

true

Föndra bleikar slaufur

Leikskólinn Garðasel á Akranesi tók þátt í bleika deginum í dag. Börnin á Vík, sem er elsta deild leikskólans, bjuggu til þessar bleiku slaufur úr pípuhreinsi og perlum. Guðríður Sigurjónsdóttir deildarstjóri á Vík sendi Skessuhorni þessa mynd af slaufunum en hún segir að skemmtilegar umræður hafi skapast þegar krakkarnir sátu að föndrinu. Þá hafi meðal…Lesa meira

true

Endurskoða regluverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Síðustu stóru breytingar á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga voru gerðar árið 1990. Þetta kom fram í máli Árna Sverris Hafsteinssonar, sérfræðings í Innviðaráðuneytinu, á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í morgun. Sveitarfélögum hefur síðan þá fækkað úr 204 niður í 64 og því eru nú allt aðrar væntingar en voru þá, m.a. til þjónustu sveitarfélaganna. Auk þess hafa hlutverk þeirra…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing undirrituð um íþróttamiðstöð í Búðardal

Eykt ehf. hefur lýst yfir vilja til að taka að sér verk er varðar undirbúning að uppbyggingu Íþróttamiðstöðvar í Búðardal. Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Dalabyggðar, og Páll Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eyktar undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis í dag, þetta kemur fram í tilkynningu á vef Dalabyggðar. Í vor fór fram alútboð á verkinu og hefur Eykt…Lesa meira

true

MAST segist taka dýravelferðarmál alvarlega

Matvælastofnun sendi frá sér yfirlýsingu í gær vegna mynda sem birtust á samfélagsmiðlum af hestum í Borgarfirði. Þar vísar MAST til mynda sem Steinunn Árnadóttir, hestakona í Borgarnesi, birti á Facebook-síðu sinni fyrr í vikunni. Myndirnar eru af illa höldnum hestum sem Steinunn hefur fylgst með í þó nokkurn tíma. Þann 31. ágúst s.l. birti…Lesa meira

true

Selja félagsheimilið á Staðarfelli

Byggðarráð Dalabyggðar hefur samþykkt að félagsheimilið á Staðarfelli fari í sölumeðferð. Á fundi byggðarráðs 11. október s.l. var lagt fram lóðarblað með afmörkun lóðar í kringum félagsheimilið og samþykkti ráðið lóðamörkin fyrir sitt leyti. Skýrsla Menningarmálanefndar Á síðasta ári gerði Menningarmálanefnd Dalabyggðar ítarlega skýrslu um félagsheimili í sveitarfélaginu. Þá voru metnir styrkleikar, veikleikar, ógnanir og…Lesa meira

true

Nýr snjótroðari á leið til Grundarfjarðar

Tveir fulltrúar frá Skíðasvæði Snæfellsness fóru á dögunum í ferð til Þýskalands til að skoða snjótroðara fyrir svæðið. Mikil þörf er að eiga slíkt tæki þegar snjórinn kemur loksins enda gjörbreytir það aðstæðum í fjallinu að geta troðið brautir fyrir skíðaiðkendur. Síðustu misseri hafa þau treyst á snjótroðara í annara eigu en nú er svo…Lesa meira