Fréttir

true

Gömlu dansa ball í Tónbergi – Myndband

Í síðustu viku var kennsla í Tónlistarskóla Akraness með óhefðbundnum hætti og nemendum boðið upp á ýmis námskeið í stað hefðbundinna tónlistartíma. Sum námskeiðanna voru einnig opin utan skólans. Var þetta fjörleg dagskrá og ýmsar áskoranir. Meðal annars var haldið opið gömlu dansa ball í Tónbergi, þar sem nemendur komu saman ásamt kennurum sínum og…Lesa meira

true

Engin háls- nef- og eyrna læknaþjónusta hjá HVE sem stendur

Enginn háls- nef- og eyrnalæknir hefur sinnt þjónustu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands síðan í ágúst en þá fór læknirinn sem sinnti því starfi í veikindaleyfi. Um tímabundið ástand er að ræða en ekki hefur tíðkast hjá stofnuninni að ráða inn afleysingu í slíkum tilfellum. Fólki sem liggur á að komast að hjá slíkum sérlækni er bent…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar

Akraneskaupstaður var eitt af sex sveitarfélögum sem hlutu viðurkenningu Jafnréttisvogarinnar í ár, en auk sveitarfélaganna hlutu viðurkenningu 59 fyrirtæki og 11 opinberir aðilar. Viðurkenningarnar voru veittar á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar, Jafnrétti er ákvörðun, sem var haldin við hátíðlega athöfn þann 12. október. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og er tilgangur verkefnisins m.a. að…Lesa meira

true

Síminn hefur kveikt á 5G sendum í Grundarfirði

Í síðustu viku voru starfsmenn Mílu að störfum við að bæta fjarskiptasamband í Grundarfirði. Nýr sendir var settur upp á Gamla pósthúsið, sem einnig er Símstöðin, og er staðsett í efri hluta bæjarins. Það er 5G sendir og var kveikt á honum síðasta föstudag svo nú er komið 5G samband í Grundarfirði fyrir viðskiptavini Símans.…Lesa meira

true

Græn og væn framtíðarverkefni í íslenskum landbúnaði

Dagur landbúnaðarins fer fram á Hótel Nordica – VOX club, á morgun föstudaginn 14. október frá klukkan 10.00 – 12.00 undir yfirskriftinni Græn Framtíð. Á málþinginu verða fjölmörg áhugaverð erindi um áskoranir og framtíðarverkefni í íslenskum landbúnaði. Eftir erindin verða pallborðsumræður. Fundarstjóri er Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri BÍ. Viðburðinum verður streymt á Facebook-síðu Bændasamtakanna. Dagskrá málþingsins…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður hefur samþykkt kaup á landi Akrakots í Hvalfjarðarsveit

Á vefsíðu Akraneskaupstaðar birtist í dag eftirfarandi tilkynning: Nýverið voru samþykkt á lokuðum fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar kaup á landi Akrakots sem er í Hvalfjarðarsveit í jaðri Akraness. Í framhaldinu var gengið frá samningi við eigendur að landi og eignum Akrakots. Eftir að málið var kynnt fulltrúum Hvalfjarðarsveitar hefur sveitarfélagið óskað eftir formlegu erindi og boðið til…Lesa meira

true

Hlaðvarpið Skinkuhorn – Kynningarþáttur

Þetta er fyrsti þáttur Skinkuhornsins, sem er hlaðvarp úr smiðju Skessuhorns. Þáttastjórnendur eru Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir. Skinkuhorn eru viðtalsþættir þar sem þáttastjórnendur leitast við að taka viðtöl við Vestlendinga, sem hafa frá einhverju skemmtilegu og/eða áhugaverðu að segja. Í þessum þætti kynna þáttastjórnendur sjálfa sig og þær breytingar sem verða munu á…Lesa meira

true

Alþjóðadagr mistaka í dag

Þann 13. október ár hvert er haldinn hátíðlegur víða um heim Alþjóðadagur mistaka en hann á uppruna sinn í Finnlandi. Í tilefni dagsins verður klappað fyrir klúðrinu í Nýsköpunarsetrinu á Breið á Akranesi en það er opinn viðburður þar sem leitast verður við að varpa ljósi á mikilvægi umburðarlyndis gagnvart því sem ekki heppnast. Þar…Lesa meira

true

„Deildin er alltaf að styrkjast“

Baldur Þorleifsson þjálfari Snæfells í körfunni tekinn tali Kvennalið Snæfells hóf leik í 1. deild kvenna í körfuknattleik seinni hluta septembermánaðar og hefur farið ágætlega af stað í deildinni. Snæfell leikur í 1. deild annað árið í röð en tekin var sú ákvörðun fyrir tveimur árum að færa liðið úr úrvalsdeild niður um deild, setja…Lesa meira

true

Aldan er flutt í nýtt húsnæði í Borgarnesi

Aldan er vinnustaður í Borgarnesi þar sem fólk með skerta starfsgetu starfar. Starfsemin missti aðstöðu sína fyrir rúmu ári í Brákarey og hefur síðan verið í tímabundnu húsnæði á efstu hæð fjölbýlishússins við Borgarbraut 65a. Dágóðan tíma tók að finna hentugan stað, en nú er starfsemin komin í sérútbúið húsnæði að Sólbakka 4. Í tilefni…Lesa meira