Baldur Þorleifsson, þjálfari Snæfells.

„Deildin er alltaf að styrkjast“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<em>Baldur Þorleifsson þjálfari Snæfells í körfunni tekinn tali</em>\r\n\r\nKvennalið Snæfells hóf leik í 1. deild kvenna í körfuknattleik seinni hluta septembermánaðar og hefur farið ágætlega af stað í deildinni. Snæfell leikur í 1. deild annað árið í röð en tekin var sú ákvörðun fyrir tveimur árum að færa liðið úr úrvalsdeild niður um deild, setja af stað þriggja ára áætlun og hefja uppbyggingarstarf sem miðar að því að koma upp samkeppnishæfu liði í efstu deild að nýju. Baldur Þorleifsson er þjálfari Snæfells á sínu öðru ári og er spenntur fyrir nýju tímabili.\r\n\r\nNú rétt misstuð þið af sæti úrslitakeppninni á síðasta tímabili og komust í úrslit í bikarnum. Varstu sáttur við gengi liðsins og var það eftir væntingum? „Það var alltaf stefnan að fara í úrslit en leikbönn og svo meiðsli komu í veg fyrir það. En að komast í undanúrslit í bikar sem 1 deildarlið var ágætis afrek og alltaf gaman að taka þátt í svona leikjum.“\r\n\r\nBaldur segir að undirbúningstímabilið hafi byrjað í ágúst og farið rólega af stað. Allir leikmenn enn í vinnu og erlendu leikmennirnir hefðu mætt seint til leiks. Þó nokkrar breytingar hafa orðið á liðinu síðan í fyrra, tveir nýir erlendir leikmenn og yngri stelpurnar orðnar ári eldri og tilbúnar í stærra verkefni.\r\n\r\nNú eru búnir fjórir leikir af mótinu. Þrír sigrar og eitt tap, hvernig líst þér á framhaldið?\r\n\r\n„Byrjunin á mótinu er að mínu mati nokkuð eðlileg, við erum loksins komin með fullskipað lið en þurftum að bíða í dágóðan tíma eftir að bandaríski framherjinn okkar fengi leikheimild. Okkar markmið eru einfaldlega að gera betur en í fyrra.“\r\n\r\nVarðandi stuðninginn við liðið í Stykkishólmi segir Baldur að hann sé alltaf mikill, bæði frá íbúum og bæjaryfirvöldum. En að lokum, hvernig líst þér á deildina og hvaða lið verða í baráttunni að komast upp? „Deildin er alltaf að styrkjast og spennandi vetur framundan. Miðað við byrjunina á mótinu líta KR og Þór Akureyri mjög vel út og eru líkleg, en þetta er bara rétt að byrja.“",
  "innerBlocks": []
}
„Deildin er alltaf að styrkjast“ - Skessuhorn