Gömlu dansa ball í Tónbergi – Myndband

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í síðustu viku var kennsla í Tónlistarskóla Akraness með óhefðbundnum hætti og nemendum boðið upp á ýmis námskeið í stað hefðbundinna tónlistartíma. Sum námskeiðanna voru einnig opin utan skólans. Var þetta fjörleg dagskrá og ýmsar áskoranir. Meðal annars var haldið opið gömlu dansa ball í Tónbergi, þar sem nemendur komu saman ásamt kennurum sínum og léku á ýmis hljóðfæri undir dansi. Var Danshópurinn Sporið fenginn til að hefja dansinn og marsera með nemendum, kennurum og gestum og mættu meðlimir hópsins í búningum. Hringdans var einnig á dagskrá, við undirleik nemenda og kennara skólans. Hafði Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri á orði að þetta þyrfti að vera árviss þáttur í skólastarfinu framvegis.\r\n\r\n \r\n\r\nhttps://youtu.be/9LpVEX1AqqA",
  "innerBlocks": []
}
Gömlu dansa ball í Tónbergi - Myndband - Skessuhorn