Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Ljósm. gj

Engin háls- nef- og eyrna læknaþjónusta hjá HVE sem stendur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Enginn háls- nef- og eyrnalæknir hefur sinnt þjónustu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands síðan í ágúst en þá fór læknirinn sem sinnti því starfi í veikindaleyfi. Um tímabundið ástand er að ræða en ekki hefur tíðkast hjá stofnuninni að ráða inn afleysingu í slíkum tilfellum. Fólki sem liggur á að komast að hjá slíkum sérlækni er bent á að leita annað, t.d. á einkastofur í Reykjavík, en víðast hvar er langur biðtími. Þetta segir Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir, forstjóri HVE, í samtali við Skessuhorn. Einungis hefur verið einn háls-nef og eyrnalæknir á HVE um árabil, með starfsstöð á Akranesi, en hann hefur sinnt þjónustu á flestum starfsstöðvum stofnunarinnar með reglulegum heimsóknum þangað. Aðspurð segir Jóhanna Fjóla að þótt biðtími eftir tíma hjá háls-nef og eyrnalæknum sé langur hafi HVE hingað til ekki séð ástæðu til þess að ráða í annað stöðugildi.\r\n\r\n \r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
}
Engin háls- nef- og eyrna læknaþjónusta hjá HVE sem stendur - Skessuhorn