
Öll starfsemi Öldunnar er nú undir einu þaki við Sólbakka 4 í Borgarnesi.
Aldan er flutt í nýtt húsnæði í Borgarnesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Aldan er vinnustaður í Borgarnesi þar sem fólk með skerta starfsgetu starfar. Starfsemin missti aðstöðu sína fyrir rúmu ári í Brákarey og hefur síðan verið í tímabundnu húsnæði á efstu hæð fjölbýlishússins við Borgarbraut 65a. Dágóðan tíma tók að finna hentugan stað, en nú er starfsemin komin í sérútbúið húsnæði að Sólbakka 4. Í tilefni flutninganna bauð starfsfólk Öldunnar upp á vöfflur og opið hús síðastliðinn miðvikudag þar sem hlýlega var tekið á móti þeim sem komu og vildu gleðjast með fólkinu. Guðmundur Stefán Guðmundsson, starfsmaður Öldunnar, segist spenntur að hefja störf í nýja húsnæðinu. ,,Já, ég er spenntur að koma hingað. Þetta er bara besta húsnæði sem við starfsfólk Öldunnar höfum fengið lengi. Hér er allt til alls og gaman að vera,“ sagði Guðmundur sem tók hlýlega á móti blaðamanni og bauð síðan upp á kaffi og vöfflur.\r\n\r\nHjá Öldunni starfa ellefu manns í hæfingu í misjafnlega stórum starfshlutföllum. Fimm eru einnig í dósamóttöku sem nú er rekin undir sama þaki. Nokkrir starfa bæði í hæfingu og í dósamóttöku. Fimm leiðbeinendur eru að auki. Sjöfn Hilmarsdóttir, forstöðumaður Öldunnar segir í samtali við Skessuhorn að nýtt húsnæði sé nýinnréttað og bjóði upp á alla þá aðstöðu sem krafist er. ,,Í rauninni er þetta allt sem við báðum um, nema staðsetningin hefði mátt vera betri, en við erum þó með bíl. Það er margt spennandi framundan hjá okkur núna eins og samstarf við Kaupfélag Borgfirðinga en við förum þangað einu sinni í viku og hjálpum til. Við erum einnig í samstarfi við Nytjamarkaðinn og förum þangað tvisvar í viku. Einnig munum við fara í Menntaskóla Borgarfjarðar og fáum afnot af Kviku og lærum á tæknina þar. Draumurinn er að finna hvað starfsmenn okkar vilja gera, aðlaga okkar starfsemi að því og hafa hér jákvætt, lifandi og skemmtilegt starf,“ segir Sjöfn.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"56908,56909,56910,56911\"]",
"innerBlocks": []
}