
Ráðstefna Jafnvægisvogarinnar 2022. Ljósm. FKA
Akraneskaupstaður hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Akraneskaupstaður var eitt af sex sveitarfélögum sem hlutu viðurkenningu Jafnréttisvogarinnar í ár, en auk sveitarfélaganna hlutu viðurkenningu 59 fyrirtæki og 11 opinberir aðilar. Viðurkenningarnar voru veittar á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar, <em>Jafnrétti er ákvörðun</em>, sem var haldin við hátíðlega athöfn þann 12. október.\r\n\r\nJafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og er tilgangur verkefnisins m.a. að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. Þá er horft til þess að reyna að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir. Jafnvægisvogin veitir því viðurkenningar og dregur þannig fram í sviðsljósið fyrirtæki sem hafa náð markmiðum verkefnisins.\r\n\r\nÞess má geta að á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar árið 2021 voru viðurkenningarhafar 53 talsins en í ár voru þeir samtals 76.\r\n\r\n \r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}