Sveitarfélög með færri en þúsund íbúa greiða meira
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Guðmundur Kristján Óskarsson, dósent við Háskólann á Akureyri, hefur síðustu misseri unnið að rannsókn um úrgangsmál á Íslandi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að fámenn sveitarfélög, með þúsund íbúa og færri, greiða margfalt meira fyrir hirðu úrgangs en þau stærri og fjölmennari. Þar segir að árið 2020 hafi minni sveitarfélög greitt að meðaltali 56.000 kr.- á ári fyrir hvern íbúa, á meðan stærri sveitarfélög, sem hafa tíu þúsund íbúa og fleiri greiddu að meðaltali um 16.000 kr.- En þessar uppgefnu tölur miðast við verðlag 2021.\r\n\r\nRannsókn Guðmundar leiðir enn fremur í ljós að töluverður skortur er á gögnum og mikið ósamræmi er í upplýsingum þegar kemur að meðhöndlun og annarri ráðstöfun úrgangs á Íslandi.\r\n\r\nUm næstu áramót taka gildi umfangsmiklar lagabreytingar í úrgangsmálum, <a href=\"https://skessuhorn.is/2022/10/05/heimilisurgangur-skal-flokkadur-i-fernt-fra-og-med-aramotum/\">eins og Skessuhorn hefur áður sagt frá</a>, og benda niðurstöður rannsóknar Guðmundar til þess að kostnaður vegna hirðu úrgangs hækki enn fremur í kjölfarið. Þó munu breytingar á framleiðendaábyrgð og starfssemi Úrvinnslusljóðs, sem einnig eru í nýju lögunum, koma að hluta upp á móti þeim auka kostnaði.\r\n\r\nGuðmundur kynnti niðurstöður rannsóknar sinnar á ráðstefnu Umhverfisstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldin var á Grand hótel í Reykjavík, 7. október s.l. <a href=\"https://ust.is/umhverfisstofnun/frettir/stok-frett/2022/10/11/Sveitarfelogin-kalla-eftir-samvinnu-vid-innleidingu-a-hringrasarlogunum/\">Hér er hægt</a> að lesa stutta samantekt um efnistök ráðstefnunnar og horfa á hana í heild sinni. <a href=\"https://www.youtube.com/watch?v=AUqKqStti0s\">Fyrir áhugasama byrjar erindi Guðmundar á 1:26:10</a>",
"innerBlocks": []
}
Sveitarfélög með færri en þúsund íbúa greiða meira - Skessuhorn