Hópurinn stillti sér upp fyrir framan myndirnar af þeim Guðmundi Runólfssyni og Ingibjörgu S. Kristjánsdóttur að viðtöku lokinni. F.v. Jón Pétur Pétursson, Guðmundur Smári Guðmundsson, Gísli Pálsson, Júlíus Már Freysson, Guðmundur Pálsson, Hólmfríður Hildimundardóttir, María Magdalena Guðmundsdóttir, Unnsteinn Guðmundsson og Runólfur Guðmundsson.

Nýr snjótroðari á leið til Grundarfjarðar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Tveir fulltrúar frá Skíðasvæði Snæfellsness fóru á dögunum í ferð til Þýskalands til að skoða snjótroðara fyrir svæðið. Mikil þörf er að eiga slíkt tæki þegar snjórinn kemur loksins enda gjörbreytir það aðstæðum í fjallinu að geta troðið brautir fyrir skíðaiðkendur. Síðustu misseri hafa þau treyst á snjótroðara í annara eigu en nú er svo komið að sá troðari var seldur úr bæjarfélaginu og því ekki hægt að treysta á það. Þeir Guðmundur Pálsson og Hjalti Allan Sverrison lögðu því land undir fót og héldu til Þýskalands þar sem þeir fundu slíkt tæki til kaups. Strax var hafin söfnun hjá félaginu til að fjármagna kaupin og náðist að greiða inná nýjan snjótroðara og staðfesta kaupin. Stjórn Guðmundar Runólfssonar hf ákvað á dögunum að færa Skíðasvæði Snæfellsness 3.600.000 krónur í styrk upp í kaupin en gjöfin er til minningar um Ingibjörgu S. Kristjánsdóttur en í ár eru eitthundrað ár frá fæðingu hennar. Enn vantar þó fjármagn til að klára kaupin og er félagið því að biðla til velunnara að leggja hönd á plóg því margt smátt gerir eitt stórt. Hægt er að leggja inná reikning númer 0321-13-110106 undir kennitölu 6301892689 ef menn vilja styrkja þessa miklu búbót fyrir skíðasvæðið.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"large\" ids=\"56944\"]",
  "innerBlocks": []
}
Nýr snjótroðari á leið til Grundarfjarðar - Skessuhorn