
Grafík. dalir.is
Viljayfirlýsing undirrituð um íþróttamiðstöð í Búðardal
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eykt ehf. hefur lýst yfir vilja til að taka að sér verk er varðar undirbúning að uppbyggingu Íþróttamiðstöðvar í Búðardal. Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Dalabyggðar, og Páll Daníel Sigurðsson, framkvæmdastjóri Eyktar undirrituðu viljayfirlýsingu þess efnis í dag, þetta kemur fram í <a href=\"https://dalir.is/frettir/ithrottamidstod-i-budardal/\">tilkynningu á vef Dalabyggðar.</a>\r\n\r\nÍ vor fór fram<a href=\"https://dalir.is/frettir/ithrottamidstod-i-budardal-alutbod/\"> alútboð á verkinu</a> og hefur Eykt lýst yfir vilja til að taka að sér verkið á grunni þess, en þó þurfi að skoða ákveðin atriði betur er lúti m.a. að hönnun- og kostnaðarþáttum verksins áður en til verksamnings kemur.\r\n\r\nMarkmið viljayfirlýsingarinnar er að vera verksamning um verkið á grunni alútboðsins frá því í vor en engin viðbrögð fengust við því þá.\r\n\r\nSamkomulagið sem undirritað var í dag felur í sér að Eykt taki að sér frekari rýni á hönnunar- og kostnaðarþáttum verksins og taki sér tíma í það fram til 30. desember n.k. Þá verður tíminn fram að áramótum einnig nýttur í viðræður um verksamning og segir í tilkynningu frá Dalabyggð að sveitarfélagið vonist til að sú vinna leiði til þess að framkvæmdir við íþróttamiðstöðina geti hafist snemma á næsta ári, 2023.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"large\" ids=\"56957\"]",
"innerBlocks": []
}