
Frá Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga. Ljósm. ih
Endurskoða regluverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðustu stóru breytingar á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga voru gerðar árið 1990. Þetta kom fram í máli Árna Sverris Hafsteinssonar, sérfræðings í Innviðaráðuneytinu, á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í morgun. Sveitarfélögum hefur síðan þá fækkað úr 204 niður í 64 og því eru nú allt aðrar væntingar en voru þá, m.a. til þjónustu sveitarfélaganna. Auk þess hafa hlutverk þeirra og skyldur gagnvart íbúum vaxið mjög.\r\n\r\nÍ fyrirlestri sínum kynnti Árni Sverrir drög að nýju líkani til að nota við útreikninga Jöfnunarsjóðs. Það líkan sameinar tekjujöfnun, útgjaldajöfnun, fasteignaskatt og almennt grunnskólaframlag í eitt jöfnunarframlag.\r\n\r\nMarkmiðið með þessu nýja líkani er að framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga nýtist betur til að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga. Um leið er horft til þess að það geri fyrirkomulagið gagnsærra og nálgunina nútímalegri.\r\n\r\nÞær meginforsendur sem horft er til eru ólíkir tekjuöflunarmöguleikar sveitarfélaga, ólík útgjaldaþörf og sérstakar áskoranir, en einnig er litið til fleiri þátta, svo sem íbúafjölda.\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}