Félagsheimilið á Staðarfelli. Ljósm. SSV
Selja félagsheimilið á Staðarfelli
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Byggðarráð Dalabyggðar hefur samþykkt að félagsheimilið á Staðarfelli fari í sölumeðferð. Á <a href=\"https://dalir.is/stjornsysla/nefndir-stjornir-ofl/fundargerd/fundur/?id=63uwx6haUibEGQJGLhndw1&text=\">fundi byggðarráðs 11. október s.l. var lagt fram lóðarblað með afmörkun lóðar í kringum félagsheimilið og samþykkti ráðið lóðamörkin fyrir sitt leyti.\r\n\r\nSkýrsla Menningarmálanefndar\r\n\r\nÁ síðasta ári gerði Menningarmálanefnd Dalabyggðar <a href=\"https://dalir.is/wp-content/plugins/nv_onemeeting/displaydocument.php?itemid=HcetM7EQO0iDNm9_OzKmg&meetingid=_ua6jNX2rU29dyv2DR1KLQ1\">ítarlega skýrslu um félagsheimili í sveitarfélaginu. Þá voru metnir styrkleikar, veikleikar, ógnanir og tækifæri og haldnir voru hugarflugsfundir í hverju félagsheimili þar sem íbúum gafst kostur á að koma með hugmyndir að notkun.\r\n\r\nÍ niðurstöðu skýrslu Menningarmálanefndar segir að ástand félagsheimilisins á Staðarfelli sé nú þannig að fara þurfi í nokkrar framkvæmdir til að fá endurnýjað starfsleyfi, til að geta haldið viðburði þar sem fólki er stefnt saman í húsið. Þá veltir nefndin því upp hvort sveitarfélagið eigi að standa fyrir því að koma húsinu í það horf að starfsleyfi fáist. Í skýrslunni segir að það er samnefnt með þeim hugarflugsfundum sem haldnir voru að íbúar Dalabyggðar virðist vilja fá meira líf í félagsheimilin á svæðinu. Ekki skorti hugmyndir um notkun á félagsheimilinu á Staðarfelli og gátu íbúar m.a. séð þar fyrir sér kaffihús, vinnustofur fyrir listamenn og sýningarsal eða sýningar í tengslum við byggðasafn eða listasafn.\r\n\r\nSkásti kosturinn að selja húsið\r\n\r\nÞrír eigendur eru að húsinu; sveitarfélagið Dalabyggð á 65% eignarhlut, Kvenfélagið Hvöt á 20% og Ungmennafélagið Dögun á 15%.\r\nÍ niðurstöðunni skýrslu Menningarmálanefndar er lagt til að sveitarfélagið taki samtal um að eftirláta Kvenfélaginu Hvöt og Ungmennafélaginu Dögun húsið til fullrar eignar. Þá ættu félögin húsið og myndu sjá um allan kostnað við rekstur, viðhald og uppbyggingu og hægt væri að skoða samstarfssamning við Dalabyggð um rekstrarstuðning, verði húsnæðið nýtt til menningarstarfsemi.\r\nÍ framhaldinu funduðu sveitarstjóri og formaður Byggðarráðs með fulltrúum Kvenfélagsins Hvatar og Ungmennafélagsins Dögunar þann 14. júlí 2021 þar sem farið var yfir stöðuna. <a href=\"https://dalir.is/wp-content/plugins/nv_onemeeting/displaydocument.php?itemid=m6hNrw6UoUy_SWh5RCv5Qg&meetingid=mFcp6unhL0WQmGQDwd5nVQ1\">Á þeim fundi kom fram að félögin gætu ekki tekið húsið yfir og var það samhljóma niðurstaða fundarins að skásti kosturinn væri að selja húsið. Þá segir í minnisblaði frá þeim fundi að áður en hægt er að setja húsið í söluferli þarf að hnitsetja lóð í kringum húsið fyrir sölu á fá verðmat á það. Það hefur nú verið gert, eins og áður segir, og er húsið á leið í sölumeðferð.\r\n\r\n \r\n\r\n \r\n\r\n \r\n\r\n ",
"innerBlocks": []