Eitt hrossanna sem um ræddi í umfangsmiklu dýravelferðarmáli í Borgarfirði síðastliðið haust. Ljósm. Steinunn Árnadóttir

MAST segist taka dýravelferðarmál alvarlega

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Matvælastofnun sendi frá sér yfirlýsingu í gær vegna mynda sem birtust á samfélagsmiðlum af hestum í Borgarfirði. Þar vísar MAST til mynda sem Steinunn Árnadóttir, hestakona í Borgarnesi, birti á Facebook-síðu sinni fyrr í vikunni. Myndirnar eru af illa höldnum hestum sem Steinunn hefur fylgst með í þó nokkurn tíma. Þann 31. ágúst s.l. birti Steinunn myndir af einum hestanna, skinhoruðu tryppi, í gerði við hesthús í Borgarnesi. Við þær myndir skrifaði Steinunn: „Þessi vesalings skepna á sér engan málsvara. Eftirlit bregst og dýrið líður fyrir. Í dag er þetta litla tryppi lokað inni ásamt öðrum í sama ástandi. Lokuð inni til að deyja.“\r\n\r\nÍ kjölfarið spratt upp mikil umræða í samfélaginu og á samfélagsmiðlum og var MAST gagnrýnd harðlega fyrir að bregðast ekki við en Steinunn sagðist margsinnis hafa sent ábendingar um slæman aðbúnað hrossanna til stofnunarinnar án þess að fá nokkur viðbrögð.\r\n\r\nVið myndirnar sem Steinunn birti í vikunni af þessum hrossum skrifar hún: „Nú eru vesalingarnir sem voru innilokaðir í heilt ár við hörmulegar aðstæður að bíða dauðans. Þau eru illa haldin: feldurinn er ekki í lagi fyrir veturinn og auðvitað grindhoruð.“ Jafn framt skrifar Steinunn: „Þetta eru gripir sem eru undir „eftirliti“ búfjáreftirlitsmanns á Vesturlandi.“ Þá tala myndirnar sínu máli og sýna horuð og illa haldin hross .\r\n\r\nÍ yfirlýsingu MAST segir að stofnunin vilji árétta að „dýravelferðarmál eru tekin alvarlega og sett hratt og örugglega í farveg innan stofnunarinnar.“ Þá segir að ábending um hestana sem um ræðir hafi komið inn á borð stofnunarinnar seint í sumar þar sem skyldum umráðamanna um útivist þeirra hafði ekki verið sinnt. Þá hafi, við eftirlit MAST, verið skráð alvarlegt frávik við holdafar hluta hrossanna og segir jafnframt að aðgerðir hafi miðast við að hestunum yrði hleypt út og þau fóðruð með beit. „Frá því að hrossunum var hleypt út hefur verið viðhaft eftirlit með þeim. Málið er enn til meðferðar hjá stofnuninni og verður kröfum um úrbætur fylgt eftir,“ segir í yfirlýsingu MAST.",
  "innerBlocks": []
}
MAST segist taka dýravelferðarmál alvarlega - Skessuhorn