Fréttir

true

Rafmagn tekið af næstu nótt á hluta Akraness

Veitur kynna að rafmagn verður tekið af nokkrum húsum á Akranesi aðfararnótt föstudagsins 7. október frá klukkan 00:05 til 05:30. Rafmagn verður þá tekið af eftirfarandi húsum: Skagabraut 33 til 50, Sandabraut, Jaðarsbraut 3 til 25 og Garðabraut 2A. Sjá nánar á heimasíðu Veitna www.veitur.isLesa meira

true

„Mikil áskorun að leika í nýrri deild eftir að hafa fallið“

Rætt við Sveinbjörn Geir Hlöðversson formann Kára um tímabilið í sumar Knattspyrnufélagið Kári á Akranesi varð í fimmta sæti í 3. deild karla í knattspyrnu í sumar með 34 stig, vann tíu leiki, gerði fjögur jafntefli og tapaði átta leikjum. Liðið lék í 3. deild í sumar í fyrsta skipti síðan árið 2017 en á…Lesa meira

true

Brynjar ráðinn þjálfari Víkings Ólafsvík

Stjórn knattspyrnudeildar Víkings Ólafsvíkur tilkynnti á FB síðu sinni í hádeginu að félagið hafi ráðið Brynjar Kristmundsson sem nýjan meistaraflokksþjálfara félagsins. Samningur Brynjars er til tveggja ára. Fram kemur á síðunni að undanfarin þrjú tímabil hafi Brynjar starfað sem aðstoðarþjálfari félagsins og var hann fyrsti kostur félagsins þegar kom að því að ráða nýjan þjálfara.…Lesa meira

true

Guðrún Vala ráðin framkvæmdastjóri Símenntunar

Guðrún Vala Elísdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands. Alls sóttu 13 um starfið og þakkar stjórn í tilkynningu öllum þeim fyrir umsóknir sínar. Guðrún Vala Elísdóttir hefur starfað sem náms- og starfsráðgjafi og verkefnastjóri hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands frá árinu 2006. Fyrir þann tíma gegndi hún stöðu deildarstjóra sérkennslu í Grunnskólanum í Borgarnesi, fagstjóri unglingadeildar…Lesa meira

true

Hljómsveitin Tíbrá meðal flytjenda á Heima Skaga í ár

Heima-Skagi er tónlistarhátíð á Akranesi sem haldin er í tengslum við Vökudaga, menningarhátíð Akurnesinga, og fer fram nú í annað sinn. Á hátíðinni sem verður laugardaginn 5. nóvember koma fram tíu listamenn og/eða hljómsveitir sem spila tvisvar sinnum hver í jafn mörgum húsum og er um að ræða eitt kvöld með alls 20 tónleikum í…Lesa meira

true

Ýmsar framkvæmdir í gangi í Borgarbyggð

Fram kemur á heimasíðu Borgarbyggðar að það sé í nógu að snúast hjá starfsfólki umhverfis- og framkvæmdadeildar um þessar mundir. Meðal annars mun á næstu vikum rísa sjóræningjaskip á skólalóðinni við Grunnskólann í Borgarnesi. Beðið er með eftirvæntingu eftir leiktækinu en það voru börnin sjálf sem völdu þetta tiltekna tæki fyrir skólalóðina. Þá gengur vel…Lesa meira

true

„Alltaf sárt að ná ekki sínum markmiðum“

ÍA varð í fimmta sæti í 2. deild kvenna í knattspyrnu í sumar með 31 stig, þær unnu tíu leiki, gerðu eitt jafntefli og töpuðu fimm leikjum. Skagakonur léku í fyrsta skipti í 2. deild kvenna á Íslandsmótinu í sumar en höfðu leikið í næstefstu deild síðustu fimm árin þar á undan. Magnea Guðlaugsdóttir var…Lesa meira

true

Petra Baader fundaði með starfsmönnum fyrirtækisins á Íslandi

Í gær var haldinn fjölmennur starfsmannafundur í húsnæði Skagans 3X á Akranesi þar sem Petra Baader forstjóri og eigandi Baader ræddi við starfsmenn um helstu áherslur eftir kaup fyrirtækisins á Skaganum 3X. Fundinum var streymt á Ísafjörð, en starfsmenn fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu mætti til fundarins á Akranesi. Í máli Petru kom skýrt fram að Baader…Lesa meira

true

,,Borgarnes var mitt eigið Disneyland“ – Pavel Ermolinskij

Körfuboltamaðurinn knái Pavel Ermolinskij birtir pennagrein í Skessuhorni þessa vikuna þar sem hann þakkar Borgnesingum fyrir móttökurnar sem hann og fjölskylda hans fengu en Pavel var fimm ára gamall og fjölskylda hans fluttist þangað frá Rússlandi. Í Borgarnesi fékk hann mikið körfuboltauppeldi en hann segir síðustu tvo áratugi í lífi sínu hafa farið á allt…Lesa meira

true

Heimilisúrgangur skal flokkaður í fernt frá og með áramótum

Alþingi samþykkti í júní 2021 lagafrumvarp sem felur í sér breytingu á lögum nr. 55/2003 með innleiðingu Evróputilskipana sem eiga að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis. Markmiðið með hringrásarhagkerfi er að draga úr auðlindanotkun, auka líftíma auðlinda jarðar og koma í veg fyrir að efni og hlutir hverfi úr hagkerfinu sem úrgangur. Frumvarp þetta til…Lesa meira