
Guðrún Vala Elísdóttir.
Guðrún Vala ráðin framkvæmdastjóri Símenntunar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Guðrún Vala Elísdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands. Alls sóttu 13 um starfið og þakkar stjórn í tilkynningu öllum þeim fyrir umsóknir sínar.\r\n\r\nGuðrún Vala Elísdóttir hefur starfað sem náms- og starfsráðgjafi og verkefnastjóri hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands frá árinu 2006. Fyrir þann tíma gegndi hún stöðu deildarstjóra sérkennslu í Grunnskólanum í Borgarnesi, fagstjóri unglingadeildar hjá sama skóla og var skólastjóri Laugagerðisskóla á árunum 1998-1999. Guðrún Vala hefur gegnt stjórnarsetu ýmissa félaga og nefnda. Má þar helst nefna að hún er formaður stjórnar Vesturlandsdeildar Rauða krossins og hefur gegnt því hlutverki frá árinu 2019. Hún var áður formaður stjórnar Borgarfjarðardeildar Rauða krossins frá 2018. Guðrún var formaður stjórnar Leiknar, samtaka aðila í fullorðinsfræðslu, frá 2017-2020 og í stjórn SONI, Society of new Icelanders frá 2012.\r\n\r\nGuðrún Vala lauk meistaragráðu í stjórnun menntastofnana árið 2016, BA gráðu í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 1995 og B.Ed prófi í uppeldis- og kennslufræði frá Kennaraháskóla Íslands árið 1996. Hún hefur einnig lokið fimm diplómum á meistarastigi; í fjölmenningu, margbreytileika og flóttafólki, náms- og starfsráðgjöf, sérkennslufræði og stjórnun og hugrænni atferlismeðferð.\r\n\r\nGuðrún Vala mun taka við stöðu framkvæmdastjóra þann 1. nóvember nk.",
"innerBlocks": []
}