Í janúar 2023 verður söfnun úrgangs um allt land á þennan veg. /Grafík. Handbók um framkvæmd úrgangsstjórnunar.
Heimilisúrgangur skal flokkaður í fernt frá og með áramótum
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Alþingi samþykkti í júní 2021 lagafrumvarp sem felur í sér breytingu á lögum nr. 55/2003 með innleiðingu Evróputilskipana sem eiga að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis. Markmiðið með <a href=\"https://www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/Hringr%C3%A1sarhagkerfi%C3%B0.pdf\">hringrásarhagkerfi er að draga úr auðlindanotkun, auka líftíma auðlinda jarðar og koma í veg fyrir að efni og hlutir hverfi úr hagkerfinu sem úrgangur. Frumvarp þetta til breytingar á lögunum tekur gildi 1. janúar 2023 og skyldar heimili og fyrirtæki til sértækari flokkunar á heimilisúrgangi. Sömuleiðis skylda lögin sveitarfélög til sérstakrar söfnunar á fleiri úrgangstegundum en verið hefur, svo sem lífrænum úrgangi, textíl og spilliefnum.\r\n\r\nÞá verður úrgangur við heimili flokkaður sem hér segir:\r\n
\r\n \t
Pappír og pappi
\r\n \t
Plast
\r\n \t
Lífrænn úrgangur
\r\n \t
Almennt/ blandað sorp
\r\n
\r\nAuk þess eru heimili og fyrirtæki skylduð til þess að flokka málm, gler, textíl og spilliefni en þurfa þá að koma þeim í endurvinnslu á grenndar- eða gámastöð.\r\n\r\nÍ lögunum segir að sérstök söfnun á pappír og pappa, plasti og lífúrgangi skuli fara fram á sem aðgengilegastan hátt við íbúðarhús og hjá lögaðilum í þéttbýli og skuli fara fram innan lóðar viðkomandi íbúðarhúss eða lögaðila. Það þýðir að sveitarfélögin eru skyldug til þess að setja upp þar til gert flokkunarkerfi við öll heimili sem gerir íbúum kleift að flokka þessi þrjú úrgangsefni sérstaklega auk blandaðs úrgangs sem er almennt heimilissorp. Við hvert heimili verður þá fjórþætt flokkunarkerfi og hafa sveitarfélögin nokkuð frjálsar hendur til þess að útfæra það.\r\n\r\nNánar um þetta og í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag en þar eru tekin fyrir staðan á innleiðingu þessara laga í þremur sveitarfélögum á Vesturlandi sem eru mismunandi langt á veg komin með innleiðinguna.\r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
Heimilisúrgangur skal flokkaður í fernt frá og með áramótum - Skessuhorn