
Magnea Guðlaugsdóttir þjálfari ÍA. Ljósm. vaks
„Alltaf sárt að ná ekki sínum markmiðum“
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "ÍA varð í fimmta sæti í 2. deild kvenna í knattspyrnu í sumar með 31 stig, þær unnu tíu leiki, gerðu eitt jafntefli og töpuðu fimm leikjum. Skagakonur léku í fyrsta skipti í 2. deild kvenna á Íslandsmótinu í sumar en höfðu leikið í næstefstu deild síðustu fimm árin þar á undan. Magnea Guðlaugsdóttir var þjálfari ÍA í sumar en hún tók við liðinu fyrir tímabilið. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Magneu í síðustu viku og fyrsta spurningin varðaði það að þær hefðu unnið sjö leiki og tapað fjórum á Íslandsmótinu áður en komið var að úrslitakeppninni. Allt voru það töp á móti liðunum sem enduðu fyrir ofan þær í deildinni. Ertu með einhverja skýringu á því og er kannski ein skýringin að þessir leikir voru allir á útivelli?\r\n\r\n„Jú, mikið rétt. Þessi lið enduðu fyrir ofan okkur fyrir úrslitakeppnina. Það er alltaf gott fyrir sálina að kenna einhverju um slæmt gengi en fyrst og fremst er þetta okkar klúður. Við áttum alltaf að vinna þessa leiki sem töpuðust. Eftir að við fengum útlendingana höfum við verið með besta liðið í deildinni, að mínu mati að minnsta kosti. Þannig að eitt af klúðri ársins var hversu seint við tókum erlendu útispilarana. Heimaleikur-útileikur, jú að sjálfsögðu hefur það að segja þar sem okkur líður vel á Norðurálsvelli. Við töpuðum ekki leik hér heima á Íslandsmótinu svo klárlega er uppröðunin í þessu móti sem og skipulag mótsins til skammar.“\r\n\r\n<em>Lengra viðtal má finna í nýjasta tölublaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}