Fréttir

true

Yfir þrjátíu umsóknir í fyrstu úthlutun framkvæmdasjóðs DalaAuðs

Stuðningsverkefnið DalaAuður í Dalabyggð leggst greinilega vel í íbúa, því samtals bárust 30 umsóknir í frumkvæðissjóð sem nú verður í fyrsta skipti úthlutað úr. Umsóknarfrestur fyrir verkefnið rann út 30. september síðastliðinn. Er þetta fyrsta árið sem opnað er fyrir umsóknir í frumkvæðissjóðinn og kveðst Linda Guðmundsdóttir verkefnisstjóri vera himinlifandi yfir þessum mikla áhuga og…Lesa meira

true

Ákváðu að ráða ekki í stöðu fréttamanns að sinni

„Við ákváðum að ráða ekki í starfið að sinni,“ segir Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri RÚV í samtali við Skessuhorn, en RÚV auglýsti nú í september laust til umsóknar starf fréttamanns á Vesturlandi og Vestfjörðum. Heiðar segir að fáar umsóknir hafi borist og eftir að hafa farið rækilega í gegnum þær hafi verið tekin sú ákvörðun…Lesa meira

true

Fjórtán ára á ofsahraða

Seinni part síðasta síðasta föstudags var tilkynnt um ofsaakstur ökumanns á suðurleið yfir Holtavörðuheiði. Lögreglan úr Borgarnesi fór til móts við bílinn og mætti honum við Baulu þar sem hún gaf honum merki um að stoppa með forgangs- og blikkljósum. Ökumaðurinn stöðvaði ekki bifreiðina heldur jók hraðann og hvarf sjónum. Lögregla kom síðan að bæ…Lesa meira

true

Grettir Sterki til taks – ný ferja væntanleg um áramót

Vegagerðin í samvinnu við Sæferðir og Stykkishólmsbæ hefur tekið á leigu dráttarbátinn Gretti Sterka. Báturinn lagðist að bryggju í Stykkishólmi á mánudaginn og mun verða til taks á Breiðafirði meðan beðið er eftir nýrri Breiðafjarðarferju í stað Baldurs. Það eru Sæferðir sem sjá um mönnun dráttarbátsins en með því á að tryggja að fyrsta viðbragð…Lesa meira

true

Hressleiki og hreyfing á Heilsuviku FVA

Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi hélt í síðustu viku Heilsuviku og var hún í gangi alla vikuna með alls kyns viðburðum. Meðal þess sem var á dagskrá var róðrakeppni á sal milli starfsfólks og nemenda, fjallgöngur, kajakróður, ratleikur, núvitund og fimleikakvöld. Hápunkturinn var íþróttakeppnin WestSide þar sem FVA, Menntaskóli Borgarfjarðar og Fjölbrautaskóli Snæfellinga leiddu saman hesta…Lesa meira

true

Lækka veiðiráðgjöf í loðnu

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að loðnuafli á næstu loðnuvertíð verði ekki meiri en 218.400 tonn. Ráðgjöfin kemur í stað upphafsráðgjafar upp á 400.000 tonn sem byggði á magni ókynþroska loðnu í haustmælingum 2021. „Ráðgjöfin verður endurskoðuð að loknum mælingum Hafrannsóknastofnunar á stærð veiðistofnsins í janúar/febrúar eins og aflaregla strandríkja fyrir stofninn gerir ráð fyrir,“ segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Snjóað gæti á fjallvegum næstu nótt

Vegagerðin varar við því að samkvæmt veðurspá gæti snjóað á fjallvegum í nótt og fyrramálið. Nefndar eru til sögunnar Holtavörðuheiði, Brattabrekka og Steingrímsfjaðarheiði. Krapi verður á Vatnsskarði og Þverárfjalli og líklega einnig smá föl eða hálka á Öxnadalsheiði.Lesa meira

true

Kanna sameiningu Bjargráðasjóðs og Náttúruhamfaratryggingar Íslands

Starfshópur um tryggingavernd bænda hefur skilað skýrslu til matvælaráðherra. Hópurinn var skipaður í fyrra, og var ætlað að greina stöðu tryggingaverndar bænda vegna óvæntra áfalla í búskap og gera tillögur að úrbótum. Í hópnum áttu sæti fulltrúar matvælaráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, Náttúruhamfaratryggingar Íslands, Samtaka fjármálafyrirtækja f.h. tryggingafélaga, Bjargráðasjóðs og Bændasamtaka Íslands. Í skýrslunni eru lagðar…Lesa meira

true

Bleik slaufa til forvarna

Í Bleiku slaufunni í ár beinir Krabbameinsfélagið athyglinni að forvörnum gegn krabbameinum hjá konum, hvað hægt er að gera til að draga úr áhættu á að fá krabbamein. Hjá konum spila skimanir fyrir krabbameinum einna stærsta hlutverkið. „Við hvetjum konur til að bóka tíma þegar þær fá boð. Því fyrr sem krabbamein eða forstig þess…Lesa meira

true

Nemendur í MB læra á myndver og þrívíddarprentara

Menntaskóli Borgarfjarðar stendur framarlega á sviði nýjunga í kennslu en rýmið Kvika hefur nú verið tekið í notkun í skólanum. Kvika er kennslurými sem nota má til skapandi vinnu í öllum áföngum sem kenndir eru við skólann. Nemendur læra nú meðal annars á vel útbúið myndver, læra á vínyl- og leiserskurð ásamt þrívíddarprentun. Bragi Þór…Lesa meira