Frá Búðardal. Ljósm. sm.

Yfir þrjátíu umsóknir í fyrstu úthlutun framkvæmdasjóðs DalaAuðs

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Stuðningsverkefnið DalaAuður í Dalabyggð leggst greinilega vel í íbúa, því samtals bárust 30 umsóknir í frumkvæðissjóð sem nú verður í fyrsta skipti úthlutað úr. Umsóknarfrestur fyrir verkefnið rann út 30. september síðastliðinn. Er þetta fyrsta árið sem opnað er fyrir umsóknir í frumkvæðissjóðinn og kveðst Linda Guðmundsdóttir verkefnisstjóri vera himinlifandi yfir þessum mikla áhuga og meðbyr.\r\n\r\nVerkefnið DalaAuður er hluti Brothættra byggða sem Byggðastofnun hefur unnið að víða í dreifðari byggðum undanfarin ár. Nú á fyrstu stigum verkefnisins í Dölum hefur mikill kraftur einkennt það og íbúar tekið mikinn og virkan hátt. Frá því í lok ágúst liggur fyrir stefnumótun þar sem kallað er til sóknar í atvinnu- og menningarlífi Dalabyggðar á sama tíma og kallað er eftir aðgerðum stjórnvalda í innviðauppbyggingu.\r\n\r\nFrumkvæðissjóði DalaAuðs er ætlað að veita innspýtingu í samfélagseflandi verkefni og nýsköpun í byggðalaginu og eru 12.250.000 krónur í pottinum í þessari fyrstu úthlutun. Ef marka má fjölda umsókna er ljóst að sköpunarkraftur og athafnasemi einkennir samfélagið og að íbúar Dalabyggðar eru tilbúnir að blása til sóknar. Verkefnisstjórn DalaAuðs mun nú fara yfir og meta innsendar umsóknir og er áætlað að úthluta úr sjóðnum í byrjun nóvember.",
  "innerBlocks": []
}
Yfir þrjátíu umsóknir í fyrstu úthlutun framkvæmdasjóðs DalaAuðs - Skessuhorn