Sigurlið FVA í bandí.

Hressleiki og hreyfing á Heilsuviku FVA

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi hélt í síðustu viku Heilsuviku og var hún í gangi alla vikuna með alls kyns viðburðum. Meðal þess sem var á dagskrá var róðrakeppni á sal milli starfsfólks og nemenda, fjallgöngur, kajakróður, ratleikur, núvitund og fimleikakvöld. Hápunkturinn var íþróttakeppnin WestSide þar sem FVA, Menntaskóli Borgarfjarðar og Fjölbrautaskóli Snæfellinga leiddu saman hesta sína í ýmsum íþróttagreinum og Gettu betur. FVA sigraði heildarkeppnina, FSN varð í öðru sæti og MB í því þriðja.\r\n\r\nBlaðamaður Skessuhorns skellti sér á WestSide og tók nokkrar myndir af fjörinu. Þá fengum við góðfúslegt leyfi að birta nokkrar myndir frá FVA og vildi skólinn þakka eftirtöldum sem styrktu þau til góðra verka. Það eru Fimleikafélag Akraness, Keilufélag Akraness, Golfklúbburinn Leynir, Akraneskaupstaður, Siglingafélagið Snarfari, ÍA, Ultraform, ÍSÍ og Leó Jóhannesson.\r\n\r\n[gallery size=\"medium\" ids=\"56741,56742,56743,56744,56745,56746,56747\"]",
  "innerBlocks": []
}
Hressleiki og hreyfing á Heilsuviku FVA - Skessuhorn