Ákváðu að ráða ekki í stöðu fréttamanns að sinni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "„Við ákváðum að ráða ekki í starfið að sinni,“ segir Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri RÚV í samtali við Skessuhorn, en RÚV auglýsti nú í september laust til umsóknar starf fréttamanns á Vesturlandi og Vestfjörðum. Heiðar segir að fáar umsóknir hafi borist og eftir að hafa farið rækilega í gegnum þær hafi verið tekin sú ákvörðun innan stofnunarinnar að ráða ekki í starfið að sinni heldur nýta tækifærið til að endurhugsa landsbyggðarþjónustu RÚV í heild sinni.\r\n\r\nÞar til ráðið verður í starfið segir Heiðar að fréttastofan muni halda áfram að sinna fréttaflutningi af svæðunum með því að senda fréttamenn úr Efstaleiti í fréttaferðir vestur. Þá komi til greina að senda fréttamenn í lengri fréttaferðir, fljúga þeim til Ísafjarðar og láta þá dvelja þar í nokkra daga við efnisöflun. Það hafi verið gert á árum áður, áður en farið var að ráða landsbyggðarfréttamenn. „Ef eitthvað fréttamál kemur upp á þessu svæði sem þarf að sinna samdægurs þá bregðumst við auðvitað við því,“ segir Heiðar jafnframt.\r\n\r\nEn hvað með fréttaflutning af svæðinu þangað til, óttast hann ekki að fréttastofan missi yfirsýn yfir hvað er í gangi í þessum tveimur landshlutum? „Ég er alveg hræddur um að þetta tímabundna ástand geti orðið til þess að við missum af einhverju, en Elsa María sem hefur sinnt þessu starfi síðustu þrjú ár er núna komin á vaktir hér í Efstaleiti og ætlar að hafa auga með þessu svæði áfram. Það er ennþá hægt að hafa samband við hana, og mig, og bera undir okkur ýmislegt.\"\r\n\r\nGefur þessi staða sem upp er komin fréttastofu RÚV tilefni til þess að endurskoða starf landshlutafréttamanns á Vesturlandi og Vestfjörðum í heild því svæðið er landfræðilega stórt og erfitt yfirferðar? „Þessi ákvörðun sem við tökum núna, að ráða ekki í starfið, gefur okkur tækifæri og tilefni til þess að endurhugsa þetta starf frá grunni. Mér sem fréttastjóra finnst mikilvægt að viðhalda starfsemi RÚV á landsbyggðinni, það er okkar hlutverk og við tökum það alvarlega. Við eigum að segja alls konar fréttir af öllu landinu, bæði því sem gerist í samfélaginu og ekki síður mannlífsfréttir og við tökum það hlutverk alvarlega og ég tek það alvarlega og vil að fréttastofa RÚV sé sýnileg.“\r\n\r\nEkki liggur fyrir hvenær starf fréttamanns RÚV á Vesturlandi og Vestfjörðum verður aftur auglýst til umsóknar. Það verður gert þegar tekin hefur verið ákvörðun um hvernig RÚV komi til með að sinna þessum svæðum en Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri RÚV, vonar að það ferli taki ekki langan tíma.\r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
}
Ákváðu að ráða ekki í stöðu fréttamanns að sinni - Skessuhorn