Skagasveitin Tíbrá spilar á hátíðinni og þar á meðal í gamla Iðnskólanum við Skólabraut. Ljósm. Heima-Skagi

Hljómsveitin Tíbrá meðal flytjenda á Heima Skaga í ár

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Heima-Skagi er tónlistarhátíð á Akranesi sem haldin er í tengslum við Vökudaga, menningarhátíð Akurnesinga, og fer fram nú í annað sinn. Á hátíðinni sem verður laugardaginn 5. nóvember koma fram tíu listamenn og/eða hljómsveitir sem spila tvisvar sinnum hver í jafn mörgum húsum og er um að ræða eitt kvöld með alls 20 tónleikum í það heila í tíu húsum\r\n\r\nHeima-Skagi fer fram í heimahúsum sem eru Vesturgata 71b (Einar Skúla), Vitateigur 2 (Martha og Björn), Skólabraut 20 (Guðni og Lilja) og Grundartún 8 (Elfa og Pálmi) en einnig í Bárunni brugghúsi, í Bíóhöllinni, Akraneskirkju, í gamla Iðnskólanum við Skólabraut, í Blikksmiðju Guðmundar við Akursbraut 11b, sem er einn af styrktaraðilum hátíðarinnar, og á rakarastofu Hinna við Vesturgötu. Fram kemur á heimasíðu viðburðarins að síðast þegar Heima-Skagi fór fram hafi verið uppselt. „Þetta er einstök hátíð þar sem nándin við listafólkið er mjög mikil. Það spila ekki allir á sama tíma og þeir sem eru duglegastir að rölta á milli sjá flest atriði.“\r\n\r\nÞeir fyrstu stíga á stokk klukkan 20 og þeir síðustu enda um kl. 23. Að dagskrá lokinni er svo „eftirpartí“ á Gamla Kaupfélaginu sem opið er öllum og frítt inn. Þar ætlar Guðrún Árný að fá fólk með sér í samsöng og halda uppi stuðinu. Þar getur fólk hist og borið saman bækur sínar eftir kvöldið. Miðakaupendur sækja armbönd á hátíðardaginn 5. nóvember eftir kl. 16 á Gamla Kaupfélagið. Tímasett dagskrá hátíðarinnar verður kynnt síðar. Miðasala hófst í hádeginu á tix.is og kostar miðinn kr. 6500.\r\n\r\nÞeir sem koma fram á Heima-Skaga hátíðinni í ár eru: Lay Low, Hörður Torfa, Vintage Caravan, Una Torfa, Guðrún Gunnars, Tíbrá, Júníus Meyvant, Herbert Guðmundsson, Djäss og Guðrún Árný.",
  "innerBlocks": []
}