
Innviðaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar þar sem verslanir í fámennum byggðarlögum geta sótt um. Markmiðið er að styðja við rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu. Annars vegar er hægt að sækja um rekstrarstyrk og hins vegar styrk til búnaðarkaupa.…Lesa meira








