{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Dagur íslenskrar náttúru er í dag, 16. september. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að heiðra Ómar Ragnarsson með því að velja dag náttúrunnar daginn sem Ómar kom í þennan heim. Fuglavernd hefur staðið fyrir kosningu á Fugli ársins 2022 undanfarnar vikur og mánuði. Nú er niðurstaðan um sigurvegarann komin, en fugl ársins er maríuerla.\r\n\r\nFugl ársins er fimur og fínlegur spörfugl. Maríuerlan er hvít með svarta húfu og gráleitt sjal. Stélið er langt og svart og tifar gjarnan upp og niður. Maríuerla er farfugl sem hefur vetursetu í Afríku. Hún flýgur til Íslands að vori og heldur til m.a. á ræktarlandi og við mannabústaði þar sem hún verpir m.a. í útihúsum og varpkössum, mennskum nágrönnum sínum oftast til mikillar ánægju. Þá sést hún trítla og flögra eftir flugum og fiðrildum sem hún grípur á lofti eða tínir upp af jörðinni. Hún á 5-6 egg í einu í hreiðurkörfu sem hún gerir úr stráum og verpir einu sinni til tvisvar á sumri. Kynslóðalengd maríuerlu er 4,2 ár.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_56273\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-56273 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/09/Mariuerla-er-fugl-arsins_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Maríuerla. Ljósm. GÓ.[/caption]",
"innerBlocks": []
}