Vara við að börn og unglingar taki áskorunum á TikTok
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í bréfi sem Arnbjörg Stefánsdóttir, skólastjóri Brekkubæjarskóla á Akranesi, sendi foreldum barna í skólanum í morgun kemur fram að Brúin sem er starfshópur um forvarnir á Akranesi hafi miklar áhyggjur af áhættuhegðun barna og unglinga.\r\n\r\n„Undanfarið hefur borið á því að börn og unglingar eru að taka áskorunum á samfélagsmiðlinum TikTok um allskyns áhættuhegðun. Hegðun, sem getur haft mjög svo alvarlegar afleiðingar. Til dæmis eru börn mönuð til að þrengja að brjóstkassa og öndunarvegi til að láta líða yfir sig og sparka fótum undan til að fella aðra. Einnig eru börn að mana hvort annað í að gera eitthvað áhættuatriði til að sjá hvernig það endar. Bæði eru þetta áhættuatriði sem koma af TikTok en einnig ,,heimasmíðuð\" atriði. Eitt af því er t.d að leggjast á götu og athuga hvort og þá hvenær bíll stoppar. Annað að leggjast undir bílskúrshurð til að kanna hvort hún stoppar og fleira í þessum dúr. Það er auðvitað þannig að sum börn er auðveldara að mana en önnur og ákveðið valdaójafnvægi sér til þess að börn í viðkvæmri stöðu eru í meiri áhættu á að vera att út í þessar áskoranir. Þetta er auðvitað grafalvarlegt og börn hafa verið flutt á sjúkrahús til aðhlynningar eftir að hafa tekið þátt í áskorun og er í raun tímaspursmál hvenær stórslys verður.“\r\n\r\nÞá segir enn fremur í bréfinu að nú reyni á að foreldrar taki umræðuna við börnin um þessa hegðun. „Hamrið á alvarleikanum sem afleiðingar af þessari hegðun geta orðið. Að sjálfsögðu mun umræðan einnig verða tekin í skólanum. Saman erum við sterkari.“",
"innerBlocks": []
}
Vara við að börn og unglingar taki áskorunum á TikTok - Skessuhorn