Fréttir

true

Kári kominn í fimmta sætið eftir sigur á KH

KH og Kári mættust á laugardaginn í 3. deild karla í knattspyrnu á Valsvellinum við Hlíðarenda og lauk leiknum með sigri Kára, lokatölur 0-1. Það var markahrókurinn Andri Júlíusson sem skoraði sigurmarkið undir lok fyrri hálfleiks og var þetta tólfta mark hans í deildinni í sumar. Kári komst með sigrinum í fimmta sæti deildarinnar eftir…Lesa meira

true

Skagamenn á sigurbraut

Oliver Stefánsson var hetja Skagamanna þegar hann skoraði sigurmarkið undir lok leiksins í 0-1 sigri á Keflavík í Bestu deild karla í knattspyrnu suður með sjó í gær. Þetta var annar sigur ÍA í röð sem fóru úr neðsta sæti deildarinnar í það næst neðsta með þessum sigri og gefur þeim aukna von um að…Lesa meira

true

Stafróf fuglanna er ný bók ætluð börnum

Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út nýja bók sem nefnist Stafróf fuglanna. Höfundur texta og ljósmynda er Árni Árnason Hafstað. Bókin er ætluð börnum sem eru farin að sýna stöfum og orðum áhuga og hafa náð þeim þroska að geta lært að lesa. Jafnframt er kverinu ætlað að kynna börnum algenga fugla sem sjást í náttúru…Lesa meira

true

Fjallað um ný göng undir Hvalfjörð í skýrslu RHA

Vegagerðin hefur tekið saman og birt yfirlitsáætlun um þá jarðgangakosti sem hafa verið til umræðu og skoðunar undanfarin misseri. Litið er á skýrsluna sem grunn að frekari greiningu og samantekt á þeim athugunum sem hafa verið gerðar til þessa. Alls er um að ræða 23 mismunandi jarðgangakosti á landinu; 18 á landsbyggðinni og fimm á…Lesa meira

true

Frelsisvitinn afhjúpaður á Hellissandi

Síðastliðinn fimmtudag var listaverkið Frelsisvitinn eftir þýska listamanninn Jo Kley, vígt við hátíðlega athöfn við sjávarsíðuna á Hellissandi. Frelsisvitinn er viti númer 25 eftir Jo Kley, en vitum eftir hann hefur verið komið fyrir í jafn mörgum löndum. Segja má að það sé heiður fyrir Snæfellsbæ að listamaðurinn hafi valið Hellissand fyrir styttuna. Fjölmenni mætti…Lesa meira

true

Meðvera er ný samskiptagátt við krabbameinssjúklinga

Í krabbameinsþjónustu Landspítalans hefur verið tekin í notkun ný rafræn samskiptagátt sem nefnist Meðvera. Hún bætir þjónustu við sjúklinga umtalsvert. Það var Krabbameinsfélagið sem kom verkefninu á laggirnar. Brýnt þótti að finna nýjar og nútímalegri leiðir til að tryggja og efla samskipti milli fagfólks og þeirra sem eru í krabbameinsmeðferð. Verkefnið er unnið í samstarfi…Lesa meira

true

,,Hafnarfjallið hefur aldrei verið eins fallegt“

Anna Þórhildur og Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsbörn eru frá bænum Brekku í Norðurárdal. Systkinin gengu í Varmalandsskóla og Menntaskóla Borgarfjarðar en héldu svo í háskólanám til Reykjavíkur og síðar erlendis. Anna og Bjarki eru náin og segjast vera góðir vinir, þau stríði þó hvort öðru sé góð innistæða fyrir og gera óspart grín að foreldrum…Lesa meira

true

Allir að hjóla í Grundaskóla

Það er óhætt að segja að börn og ungmenni í Grundaskóla á Akranesi hafi tileinkað sér vistvænar samgöngur. Að sögn Sigurðar Arnars Sigurðssonar skólastjóra, sem sendi Skessuhorni þessar myndir, hjóla eða ganga flestir nemendur og starfsmenn til og frá skóla. Miðað við myndirnar er það líklegast rétt og hreint aldeilis til fyrirmyndar.Lesa meira

true

Sveitungar búnir að leggja á klárana og Geirmundur á leiðinni í Þverárrétt

Í gamla samkomuhúsinu við Þverárrétt í Þverárhlíð hefur verið haldið töðugjaldaball í áratugi, uppskeruhátíð eftir heyskapinn og haustið handan við hornið. Ball þetta er alltaf síðasta föstudag í ágúst, sem einmitt er í dag. Nú er engin undantekning á hefðinni og heldur ekkert kóvid vesen í gangi. Sem fyrr eru það kvenfélagskonurnar í sveitinni sem…Lesa meira

true

Fiskimjöli lestað á Akranesi

Flutningaskipið Wilson Cadiz var í gærkvöldi að ljúka við að lesta mjöl í Akraneshöfn. Hafnsögubáturinn Haki beið þess að lóðsa skipið út úr höfninni.Lesa meira