
Listamaðurinn Jo Cley við vígsluna. Ljósm. af.
Frelsisvitinn afhjúpaður á Hellissandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðastliðinn fimmtudag var listaverkið Frelsisvitinn eftir þýska listamanninn Jo Kley, vígt við hátíðlega athöfn við sjávarsíðuna á Hellissandi. Frelsisvitinn er viti númer 25 eftir Jo Kley, en vitum eftir hann hefur verið komið fyrir í jafn mörgum löndum. Segja má að það sé heiður fyrir Snæfellsbæ að listamaðurinn hafi valið Hellissand fyrir styttuna.\r\n\r\nFjölmenni mætti til þessarar athafnar og þar á meðal þýski sendiherrann. Lionsklúbbur Nesþinga sá um ábyrgð þess að fjármagna verkið. Að sögn Kristins Jónassonar bæjarstjóra stóð ekki á stuðningi frá fyrirtækjum að styrkja verkefnið og segir hann forsvarsmenn þeirra eiga heiður skilinn fyrir stuðninginn. Kristinn sagði við þetta tilefni að steinarnir sem notaðir hafi verið í styttuna voru teknir úr grunninum fyrir viðbyggingu sem er verið að reisa á Hótel Búðum.\r\n\r\nAð lokinni vígslu bauð þýska sendiráðið á Íslandi upp á veitingar í Saltporti.",
"innerBlocks": []
}