
Geirmundur og hljómsveit á sviðinu í Samkomuhúsinu við Þverárrétt. Ljósm. frá 2018.
Sveitungar búnir að leggja á klárana og Geirmundur á leiðinni í Þverárrétt
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í gamla samkomuhúsinu við Þverárrétt í Þverárhlíð hefur verið haldið töðugjaldaball í áratugi, uppskeruhátíð eftir heyskapinn og haustið handan við hornið. Ball þetta er alltaf síðasta föstudag í ágúst, sem einmitt er í dag. Nú er engin undantekning á hefðinni og heldur ekkert kóvid vesen í gangi. Sem fyrr eru það kvenfélagskonurnar í sveitinni sem standa fyrir dansleiknum sem sinni helstu fjáröflunarleið. Miðaverð er einungis 2.500 krónur og enginn posi á staðnum, einungis beinharðir peningar teknir gildir. Geirmundur Valtýsson, skagfirski sveiflukóngurinn, mun mæta með hljómsveit sína í kvöld til að spila fyrir dansi. Á töðugjaldaballi er alltaf fullt út úr dyrum, mikið spjallað, dreypt á veigum og dansað eins og pláss og olnbogarými leyfir. Nú í dag eru menn byrjaðir að hita upp, en sveitungar í Stafholtstungum eru lagðir af stað í sinn árlega reiðtúr um sveitina, riðnar eru stuttar vegalengdir, slugsað og komið við á mörgum bæjum.",
"innerBlocks": []
}