Meðvera er ný samskiptagátt við krabbameinssjúklinga
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í krabbameinsþjónustu Landspítalans hefur verið tekin í notkun ný rafræn samskiptagátt sem nefnist Meðvera. Hún bætir þjónustu við sjúklinga umtalsvert. Það var Krabbameinsfélagið sem kom verkefninu á laggirnar. Brýnt þótti að finna nýjar og nútímalegri leiðir til að tryggja og efla samskipti milli fagfólks og þeirra sem eru í krabbameinsmeðferð. Verkefnið er unnið í samstarfi við Embætti landlæknis og er styrkt af Krabbameinsfélagi Íslands og Krabbameinsfélagi höfuðborgarsvæðisins.\r\n\r\nTilgangur samskiptagáttarinnar er að bæta einstaklingum í heimahúsum aðgengi að upplýsingum og þjónustu og auðvelda heilbrigðisstarfsfólki að hafa yfirsýn yfir sjúklingahópinn, fylgja eftir breytingu á líðan og einkennum og geta á einfaldan hátt haft samskipti við sjúklinginn og sent fræðsluefni.\r\n\r\n„Hugmyndin að verkefninu er sprottin úr klínísku starfi á Landspítalanum. Langflestir einstaklingar með krabbamein dvelja meira heima hjá sér en á spítala og hafa því oft þörf fyrir stuðning og fræðslu til þess að takast á við einkenni og aukaverkanir meðferðar og sjúkdóms. Erlendar rannsóknir sýna að sambærilegar veflausnir hafa meðal annars eflt sjálfsumönnun, bætt líðan og öryggi sjúklinga með krabbamein,“ segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu.",
"innerBlocks": []
}
Meðvera er ný samskiptagátt við krabbameinssjúklinga - Skessuhorn