Ný Hvalfjarðargöng þar sem reiknað er með að göngin komi upp norðaustan við bæinn Gröf. Teikning: Vegagerðin 2021.
Fjallað um ný göng undir Hvalfjörð í skýrslu RHA
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vegagerðin hefur tekið saman og birt yfirlitsáætlun um þá jarðgangakosti sem hafa verið til umræðu og skoðunar undanfarin misseri. Litið er á skýrsluna sem grunn að frekari greiningu og samantekt á þeim athugunum sem hafa verið gerðar til þessa. Alls er um að ræða 23 mismunandi jarðgangakosti á landinu; 18 á landsbyggðinni og fimm á höfuðborgarsvæðinu. Í samgönguáætlun 2020-2034 kemur fram að stefnt sé á að unnin verði heildstæð greining á jarðgangakostum á Íslandi og fékk Vegagerðin Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) til að skoða þessa 18 jarðgangakosti á landsbyggðinni með tilliti til arðsemi, umferðaröryggis, tengingar atvinnu- og búsetusvæða ásamt byggðaþróun.\r\n\r\nFjarðarheiðargöng næst á dagskrá\r\n\r\nÍ samgönguáætlun 2020-2034, sem samþykkt var á Alþingi í júní 2020, er gerð grein fyrir forgangsröðun og fjármögnun næstu jarðgangakosta. Samkvæmt því eru næstu jarðgöng sem koma til framkvæmda Fjarðarheiðargöng milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar og í framhaldinu yrði ráðist í gerð jarðganga milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar (Seyðisfjarðargöng) og Mjóafjarðar og Fannardals (Mjóafjarðargöng).\r\n\r\nHelmingur af fjárlögum\r\n\r\nNýmæli í samgönguáætlun er að einungis er gert ráð fyrir að helmingur stofnkostnaðar jarðganga sé fjármagnaður af samgönguáætlun. Til viðbótar er því gert ráð fyrir að helmingur stofnkostnaðar sé fjármagnaður með gjaldtöku í jarðgöngum, en slíka gjaldtöku hefur innviðaráðherra einmitt boðað í öllum jarðgöngum. Þá samþykkti Alþingi einnig árið 2020 lög um samvinnuverkefni sem heimila Vegagerðinni að gera samninga við einkaaðila um tilteknar samgönguframkvæmdir og eru þar tvenn jarðgöng tiltekin sérstaklega, annars vegar jarðgöng í Reynisfjalli við Vík og hins vegar ný Hvalfjarðargöng.\r\n\r\nTvær leiðir nefndar\r\n\r\nÍ skýrslu RHA eru nefndar tvær útfærslur fyrir ný Hvalfjarðargöng. Annars vegar ný göng sem lægju með gangnamunnann norðan fjarðar í austur og kæmu þau upp norðaustan við bæinn Gröf. Sú leið er talin stytta hringveginn um þrjá kílómetra. Hins vegar er velt upp þeim möguleika að fara með göngin undir Akrafjall og einnig stungið upp á að auki að innanverður Grunnifjörður yrði þveraður. Veghalli í þeim jarðgöngum yrði minni, en þau færu fast að skilgreindri núverandi hámarkslengd jarðganga sem er 10 kílómetrar. Göng sem kæmu upp norðaustan við Gröf yrðu hins vegar 7,5 kílómetra löng. Lengri göngin, sem kæmu út norðan við Akrafjall, er nýr valkostur í umræðunni. Með vegtengingu innarlega í Grunnafirði, sem bent er á sem valkost, yrði komist hjá lagningu tvölföldunar Vesturlandsvegar um Leirársveit, þar sem þröngt er um landrými við hlið núverandi þjóðvegar. Grunnafjörður er hins vegar skilgreindur Ramsarsvæði vegna friðlands fugla og það eitt og sér gæti útilokað að sú leið verði skoðuð nánar.\r\n\r\nKomin að þolmörkum\r\n\r\nNúverandi Hvalfjarðargöng voru vígð 1998, en upphaflega hönnuð samkvæmt norskum jarðgangastaðli frá 1992 og var þá gert ráð fyrir við hönnun þeirra að þau gætu borið um átta þúsund bíla umferð að jafnaði á dag. Miðað við núgildandi staðla er sú tala enn lægri og þar að auki gert ráð fyrir neyðarútgöngum ef slys eða óhöpp verða, þ.á.m. eldsvoði. Umferðin í gegnum Hvalfjarðargöng er að nálgast hámark allra staðla en þar sem þau voru byggð fyrir gildissetningu staðlanna, má nota þau áfram sem slík. Hins vegar er þau mögulega nú þegar komin yfir átta þúsund bíla umferð á dag, samhliða aukningu í ferðaþjónustu, vaxandi landflutningum og fleiri þátta. Af því leiðir að líklegt er að stjórnvöld og Vegagerðin muni þrýsta á að ný Hvalfjarðargöng verði boruð innan margra ára.\r\n\r\nMyndu aðallega þjóna Akranesi\r\n\r\nFram kemur í skýrslunni að núverandi Hvalfjarðargöng myndu aðallega þjóna Akranesi ef ný göng verða boruð. Gert er ráð fyrir í nýjum jarðgöngum undir Hvalfjörð, þversniði með bili á milli akreina, 2+1 akgreinar. Vegagerðin telur að með svipaðri skiptingu umferðar norðan ganga á milli umferðar til og frá Akranesi og áfram á Hringvegi dugi ný göng samanlagt vel fyrir 20.000 bíla umferð að jafnaði á dag (ÁDU). Aukist umferðin mikið umfram það væri hægt að tvöfalda nýju göngin og fengist þá enn betra mannvirki.\r\n\r\nVeggjald\r\n\r\nÍ skýrslu RHA segir að ef tekið verði upp veggjald að nýju í Hvalfjarðargöngum gæti það fjármagnað tvöföldun ganganna á tiltölulega skömmum tíma. Þannig er áætlað að ef veggjald væri 1.000 krónur á ferð fyrir fólksbíl tæki það um 14 ár, en sjö ár ef gjaldið væri 2.000 krónur. Í skýrslunni kemur fram að ný göng undir Hvalfjörð við hlið eldri ganga sé einn þeirra jarðgangakosta sem fjallað er um. Þó er tekið fram að Vegagerðin hefur ekki ákveðið svar við því hvenær umferðin er orðin það mikil að nauðsynlegt verði að grafa önnur göng. Skýrsluhöfundar benda á að í núverandi stöðlum er gerð krafa um að í nýjum göngum séu neyðarútgangar með 500 metra millibili, ef umferð er umfram átta þúsund bíla. Tvöföld göng eru talin anna um 20 þúsund bíla umferð. Stofnkostnaður við ný göng, sem yrðu 7,5 km löng og kæmu upp norðaustan við bæinn Gröf, er áætlaður rúmir 23 milljarðar króna, miðað við verðlag 2019. Lengri göng sem kæmu upp norðan við Akrafjall eru hins vegar talin kosta yfir 30 milljarða króna miðað við verðlag ársins 2019. Í skýrslunni er vakin athygli á því að þegar Sundabraut verður lögð mun umferð um Hvalfjarðargöng aukast og arðsemi ganganna um leið.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"55807,55808\"]\r\n\r\nHér má sjá skýrsluna í heild sinni:\r\n\r\n<a class=\"link-to-pdf\" title=\"Jarðgöng\" href=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/08/Jardgong.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"attachment noopener wp-att-55805\"><img class=\"alignnone size-medium wp-image-55806\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/08/Jardgong-pdf-600x849.jpg\" alt=\"thumbnail of Jarðgöng\" width=\"212\" height=\"300\" />",
  "innerBlocks": []
Fjallað um ný göng undir Hvalfjörð í skýrslu RHA - Skessuhorn