Fréttir

true

Tíu efstu í valinu á Vestlendingi ársins 2021

Undanfarinn tæpan aldarfjórðung hefur Skessuhorn auglýst eftir tilnefningum um Vestlending ársins. Fólkið sem landshlutann byggir og skarað hefur framúr á einhvern hátt á árinu. Að þessu sinni bárust tilnefningar um óvenju marga einstaklinga eða hópa, en alls var á fimmta tug einstaklinga nefndir og nokkrir þeirra hlutu mörg atkvæði. Tæplega 200 tilnefningar bárust. Þeir sem…Lesa meira

true

Yngsti þingmaður Íslandssögunnar

Fjöldi varaþingmanna hefur á undanförnum dögum tekið sæti á Alþingi vegna kórónaveirunnar sem þar hefur stungið sér niður. Í dag tóku sæti á Alþingi tvær varaþingkonur Pírata, þær Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir og Lenya Rún Taha Karim, en Gunnhildur Fríða varð um leið yngsta manneskjan til að taka sæti á Alþingi. Hún er 19 ára og…Lesa meira

true

Nýgengi smita aldrei verið hærra en nú – 89 eru í einangrun á Vesturlandi

Í gær voru 664 einstaklingar greindir með kórónuveirusmit innanlands. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir staðfestir við fréttastofu Ríkisútvarpsins nú fyrir stundu að fjórða hvert sýni sem tekið var í gær hafi reynst jákvætt, en að auki voru átta sýni greind jákvæð á landamærum. Nú er nýgengi veirunnar, smit á hverja 100 þúsund íbúa síðustu 14 daga, 1.176…Lesa meira

true

Gamla þjóðveginum lokað

Undanfarin ár hefur verið hægt að aka hindrunarlaust gamla þjóðveginn á Akranes. Um gamlan malarveg er að ræða sem hlýtur takmarkað viðhald. Meðfram veginum hafa m.a. frístundabændur aðstöðu auk þess sem þar er garðyrkjustöð. Hestamenn á Æðarodda nýta mikið reiðgötu sem liggur samsíða veginum. Nú hefur verið settur upp vegatálmi á gamla veginn austan við…Lesa meira

true

Sala og dreifing á unnum afurðum villtra fugla

Vegna margra ábendinga til Matvælastofnunar um sölu og dreifingu á unnum afurðum frá villtum fuglum, bendir stofnunin á að ekki má selja afurðir gæsa, anda eða annarra villtra fugla, né dreifa þeim, nema með leyfi Matvælastofnunar eða viðkomandi Heilbrigðiseftirlitssvæðis. Auglýsing á Facebook getur talist til sölu eða dreifingar.  Matvælastofnun er skylt og mun fylgja eftir…Lesa meira

true

Stefnir í betri rekstrarafkomu hjá Borgarbyggð

Samanburður á rekstri Borgarbyggðar fyrstu tíu mánuði ársins við fjárhagsáætlun leiðir í ljós að rekstrarafkoma sveitarfélagsins er betri en áætlað var á þessum tíma árs eða um samtals 185 milljónir króna, en frá þessu segir á vef sveitarfélagsins. Skatttekjur Borgarbyggðar eru heldur hærri en gert var ráð fyrir og munar þar mestu um að staðgreiðsla…Lesa meira

true

Mikil fjölgun nemenda á milli ára

Nemendur á skólastigum ofan grunnskóla hér á landi voru 46.328 haustið 2020 og hafði fjölgað um 4.721 frá hausti 2019 eða um 11,3%. Þetta er næstmesti fjöldi nemenda á þessum skólastigum sem mælst hefur samkvæmt tölum Hagstofu Íslands en lítið eitt fleiri nemendur stunduðu nám haustið 2011. Nemendum fjölgaði á öllum skólastigum og á öllum…Lesa meira

true

Jónína Bergmann verðlaunuð fyrir leik sinn í Rán

Íslenska stuttmyndin Rán hlaut verðlaun fyrir bestu leikkonuna á alþjóðlegri kvikmyndahátíð sem fram fór í Asti á Ítalíu skömmu fyrir jól. Það var Jónína Margrét Bergmann frá Háafelli Hvítársíðu sem hlaut verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni. Rán var tekin upp á Vestfjörðum á vordögum 2020 skömmu eftir að fimm manna samkomubanni var aflétt á…Lesa meira

true

Áfram er mikill fjöldi að greinast með smit

Í gær greindust 463 með Covid-19 smit innanlands og níu til viðbótar á landamærunum, alls 472 einstaklingar. Tölur smitaðra eru nú komnar yfir þúsund á hverja hundrað þúsund íbúa. 128 þeirra sem greindust í gær voru í sóttkví við greiningu, eða rúmlega fjórðungur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá almannavarnadeild lögreglunnar. Hér á Vesturlandi eru…Lesa meira

true

Stóraukin uppbygging í fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar

Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022 og þriggja ára áætlun 2023 til 2025 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness 14. desember. Einnig var fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun samþykkt. Helstu atriði fjárhagsáætlunar 2022 eru að gert er ráð fyrir óbreyttu útsvari á árinu 2021, eða 14,52%, gjaldskrár hækka um 3,5%, álagningarprósentur fasteignaskatta verða óbreyttar og verður 0,2514 fyrir…Lesa meira