{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vegna margra ábendinga til Matvælastofnunar um sölu og dreifingu á unnum afurðum frá villtum fuglum, bendir stofnunin á að ekki má selja afurðir gæsa, anda eða annarra villtra fugla, né dreifa þeim, nema með leyfi Matvælastofnunar eða viðkomandi Heilbrigðiseftirlitssvæðis. Auglýsing á Facebook getur talist til sölu eða dreifingar. Matvælastofnun er skylt og mun fylgja eftir auglýsingum um sölu og dreifingu á þessum afurðum.\r\n\r\n„Undantekning er þegar veiðimaður afhendir heilan fugl (óreyttan) til neytenda, markaða eða veitingastaða. Sérhver meðhöndlun á gæs telst sem vinnsla og er leyfiskyld ef selja eða dreifa á afurðunum. Þetta á t.d. við um pakkaðar gæsa- og andabringur (kryddaðar og ókryddaðar), um pate og kæfu frá þessum fuglum og um grafnar afurðir þeirra. Þegar neytt er villibráðar sem hefur verið skotin þarf ávallt að hafa í huga að hætta er á að leifar af skotfærum getur leynst í kjötinu og að blýmengun getur verið til staðar en blý er þungmálmur sem ber að varast,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun.",
"innerBlocks": []
}
Sala og dreifing á unnum afurðum villtra fugla - Skessuhorn