Stefnir í betri rekstrarafkomu hjá Borgarbyggð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Samanburður á rekstri Borgarbyggðar fyrstu tíu mánuði ársins við fjárhagsáætlun leiðir í ljós að rekstrarafkoma sveitarfélagsins er betri en áætlað var á þessum tíma árs eða um samtals 185 milljónir króna, en frá þessu segir á vef sveitarfélagsins.\r\n\r\nSkatttekjur Borgarbyggðar eru heldur hærri en gert var ráð fyrir og munar þar mestu um að staðgreiðsla er um 150 milljónum krónum hærri og framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga er 20 milljónum hærra en áætlað var. Útsvarstekjurnar eru enn fremur hærri í ár sem er í takt við fólksfjölgunina í sveitarfélaginu og niðurstaða ársins stefnir í það að vera jákvæð en áætlanir gerðu ekki ráð fyrir því á þessu ári.",
  "innerBlocks": []
}
Stefnir í betri rekstrarafkomu hjá Borgarbyggð - Skessuhorn