Jónína Bergmann stolt með verðlaunin.

Jónína Bergmann verðlaunuð fyrir leik sinn í Rán

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Íslenska stuttmyndin Rán hlaut verðlaun fyrir bestu leikkonuna á alþjóðlegri kvikmyndahátíð sem fram fór í Asti á Ítalíu skömmu fyrir jól. Það var Jónína Margrét Bergmann frá Háafelli Hvítársíðu sem hlaut verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni. Rán var tekin upp á Vestfjörðum á vordögum 2020 skömmu eftir að fimm manna samkomubanni var aflétt á svæðinu. Myndin hefur verið send á nokkrar kvikmyndahátíðir og fengið nokkur verðlaun. „Við ákváðum að þetta yrði síðasta hátíðin sem myndin færi á og fannst við verða að fylgja henni þangað,“ sagði Steingrímur Rúnar Guðmundsson, en auk hans fóru Fjölnir Baldursson og Jónína Margrét Bergmann á hátíðina í Asti. Það var fréttavefurinn bb.is á Vestfjörðum sem greindi frá.\r\n\r\nMynd Palestínumanna, Dead Sea, hlaut fyrstu verðlaun fyrir bestu stuttmyndina, en Rán hafnaði í öðru sæti í þeim flokki.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_49861\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-49861 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/12/Jonina-Bergmann-verdlaunud-fyrir-leik-sinn-i-Ran_2-600x451.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"451\" /> Aðstandendur Ránar.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Jónína Bergmann verðlaunuð fyrir leik sinn í Rán - Skessuhorn