Svipmynd frá útskrift stúdenta frá Fjölbrautaskóla Vesturlands skömmu fyrir jól. Ljósm. mm.

Mikil fjölgun nemenda á milli ára

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nemendur á skólastigum ofan grunnskóla hér á landi voru 46.328 haustið 2020 og hafði fjölgað um 4.721 frá hausti 2019 eða um 11,3%. Þetta er næstmesti fjöldi nemenda á þessum skólastigum sem mælst hefur samkvæmt tölum Hagstofu Íslands en lítið eitt fleiri nemendur stunduðu nám haustið 2011. Nemendum fjölgaði á öllum skólastigum og á öllum landsvæðum að Austurlandi undanskildu. Nemendum með erlendan bakgrunn fjölgaði sem og nemendum með íslenskan bakgrunn.\r\n\r\nNemendur á háskólastigi voru 22.067, fjölgaði um 14,7% og hafa ekki áður verið fleiri. Þar af voru 656 nemendur í doktorsnámi, sömuleiðis aldrei fleiri. Á framhaldsskólastigi stunduðu 22.767 nemendur nám sem er 7,5% fjölgun. Á viðbótarstigi voru 1.494 nemendur og hafa ekki verið fleiri nemendur á því stigi.\r\n\r\nSkólasókn 16 ára nemenda var óbreytt á milli ára, eða 95,1%, en hlutfallslega fleiri nemendur á aldrinum 17-29 ára sækja skóla en á síðasta ári. Skólasókn 19 ára nemenda hefur minnkað síðustu ár í kjölfar styttingar náms til stúdentsprófs en haustið 2020 jókst hún í 66,5% úr 58,0% árið áður.",
  "innerBlocks": []
}
Mikil fjölgun nemenda á milli ára - Skessuhorn