F.v. Gunnhildur Fríða og Lenya Rún. Ljósm. aðsend.

Yngsti þingmaður Íslandssögunnar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fjöldi varaþingmanna hefur á undanförnum dögum tekið sæti á Alþingi vegna kórónaveirunnar sem þar hefur stungið sér niður. Í dag tóku sæti á Alþingi tvær varaþingkonur Pírata, þær Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir og Lenya Rún Taha Karim, en Gunnhildur Fríða varð um leið yngsta manneskjan til að taka sæti á Alþingi. Hún er 19 ára og 241 daga gömul en fyrra metið átti Karl Liljendal Hólmgeirsson sem var 20 ára og 355 daga gamall þegar hann tók sæti árið 2018. Gunnhildur Fríða er þekkt fyrir baráttu sína fyrir aðgerðum í loftslagsmálum og innleiðingu nýrrar stjórnarskrár.\r\n\r\nLenya Rún Taha Karim komst í fréttirnar fyrr í haust þegar niðurstöður Alþingiskosninga bentu til þess að hún væri yngsti kjörni alþingismaður sögunnar. Eftir endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi datt hún af þingi og varð þess í stað 1. varaþingmaður Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hún tekur nú sæti á Alþingi í fyrsta skipti en baráttumál hennar eru afglæpavæðing vímuefna, réttindi innflytjenda og flóttafólks og aðgengi jaðarsettra hópa að menntakerfinu og heilbrigðiskerfinu.",
  "innerBlocks": []
}