Áfram er mikill fjöldi að greinast með smit

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær greindust 463 með Covid-19 smit innanlands og níu til viðbótar á landamærunum, alls 472 einstaklingar. Tölur smitaðra eru nú komnar yfir þúsund á hverja hundrað þúsund íbúa. 128 þeirra sem greindust í gær voru í sóttkví við greiningu, eða rúmlega fjórðungur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá almannavarnadeild lögreglunnar. Hér á Vesturlandi eru nú 58 í einangrun og 66 að auki í sóttkví, eða svipaður fjöldi og fyrir jól þegar Lögreglan á Vesturlandi birti síðast tölur sem bútaðar voru niður eftir búsetu í landshlutanum.\r\n\r\n3.526 eru nú í einangrun á landinu öllu og 5.109 eru í sóttkví. Samanlagt eru það 8.635 einstaklingar en til að setja þær tölur í samhengi eru það örlítið fleiri en búa samanlagt á Akranesi, í Skorradal og Hvalfjarðarsveit.",
  "innerBlocks": []
}
Áfram er mikill fjöldi að greinast með smit - Skessuhorn