Nýgengi smita aldrei verið hærra en nú – 89 eru í einangrun á Vesturlandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær voru 664 einstaklingar greindir með kórónuveirusmit innanlands. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir staðfestir við fréttastofu Ríkisútvarpsins nú fyrir stundu að fjórða hvert sýni sem tekið var í gær hafi reynst jákvætt, en að auki voru átta sýni greind jákvæð á landamærum.\r\n\r\nNú er nýgengi veirunnar, smit á hverja 100 þúsund íbúa síðustu 14 daga, 1.176 og hefur aldrei verið hærra. Veiran er því í miklum vexti á landsvísu og rík áhersla að fólk fari að öllu með gát, fari eftir settum reglum um fjöldatakmarkanir og gæti að persónulegum sóttvörnum. Fjórtán eru nú á sjúkrahúsi með veiruna, þar af tveir með Omikron-afbrigði hennar. Fimm þeirra eru á gjörgæslu, þar af þrír í öndunarvél, enginn með Omikron.\r\n\r\nSamkvæmt Covid.is eru nú 89 í einangrun með veiruna á Vesturlandi og 155 að auki eru í sóttkví. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvernig þessir 89 dreifast innan landshlutans.",
  "innerBlocks": []
}
Nýgengi smita aldrei verið hærra en nú - 89 eru í einangrun á Vesturlandi - Skessuhorn