Fréttir

true

Ronja Ræningjadóttir sýnd í Tónlistarskóla Borgarfjarðar um helgina

Nú um helgina sýnir Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar söngleik um Ronju Ræningjadóttur. Sagan er eins og flestir vita eftir Astrid Lindgren og tónlistin í sýningunni er meðal annars eftir þá Sebastian, Ostergren og Venge. Þýðing texta er eftir Þorleif Arnarsson og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir setti leikgerðina saman fyrir söngleikjadeildina og leikstýrir jafnframt söngleiknum, en frá þessu…Lesa meira

true

Magga og Stúfarnir

Magný Guðmunda Þórarinsdóttir, eða Magga dagmamma á Akranesi eins og hún er betur þekkt, fer ár hvert í aðdraganda jóla með litlu Stúfana sína í göngutúr um Akranes. Hún hefur einatt vakið athygli þegar hún fer með börnin út að ganga í jólasveinabúningunum en búningana keypti hún fyrir rúmum tíu árum síðan. Seinna gáfu foreldrar…Lesa meira

true

Mæðrastyrksnefnd berast gjafir í aðdraganda jólaúthlutunar

Síðdegis í gær afhentu fulltrúar úr Kiwanisklúbbnum Þyrli á Akranesi Mæðrastyrksnefnd Akraness peningagjöf. Klúbburinn hefur í áravís verið árlegur stuðningsaðili Mæðrastyrksnefndar. Jafnvel þótt að félagsstarf Þyrils hafi verið með minnsta móti frá því kóvid faraldurinn hófst, og því litlu verið safnað í gjafasjóð, náðu klúbbfélagar að öngla saman 250 þúsund krónum sem þeir færðu Mæðrastyrksnefnd.…Lesa meira

true

Samhugur í Borgarbyggð

Á síðasta ári tóku íbúar Borgarbyggðar sig saman og hrintu af stað verkefni sem bar heitið Samhugur í Borgarbyggð. Tilgangur þess er að veita aðstoð á þessum erfiðu tímum í kringum jólahátíðina. Verkefnið hefur verið endurvakið í ár og líkt og á síðasta ári er tekið á móti jólagjöfum, gjafabréfum og matarpökkum auk þess sem…Lesa meira

true

Skallagrímur hættir þátttöku í Subway deild kvenna

Stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms hefur tekið þá ákvörðun að draga kvennalið félagsins úr keppni í Subway deildinni. Í yfirlýsingu sem send var Skessuhorni í gærkvöldi kemur fram að yfirstandandi tímabil hafi einkennst af erfiðleikum við mönnun á liðinu og ófyrirséðum breytingum. Þá hafi jafnframt ekki tekist að manna að fullu meistaraflokksráð og stjórn deildarinnar sem er…Lesa meira

true

Karlakórinn Svanir opnaði tíunda gluggann

Tíundi gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það var Karlakórinn Svanir sem opnaði gluggann með laginu Það á að gefa börnum brauð. Óli Palli og Hlédís spjölluðu við þau Magnús Óskarsson, formann kórsins, og Valgerði Jónsdóttur, stjórnanda, fyrir flutninginn. Þar kom fram að kórinn, sem stofnaður var 1915, er að…Lesa meira

true

Jólagluggamarkaður í Borgarnesi á morgun

Jólagluggamarkaður verður á morgun, laugardag frá kl. 12-18, í Listahúsi Borgarness við Sæunnargötu 12. Þar verður hægt að finna einstakar handgerðar gjafir eftir nokkra listamenn fyrir þá sem eru fólki kært. Til að forðast óþarfa samkomur verður hægt að skoða markaðinn í gegnum glugga en þeir sem vilja kíkja inn verða að bera grímu og…Lesa meira

true

Starfshópi ætlað að skoða blóðtöku úr hryssum

Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að skipa starfshóp til að fjalla um blóðtöku úr fylfullum hryssum til framleiðslu á efninu eCG, frjósemislyfja handa dýrum. Starfshópnum verður falið að skoða starfsemina, regluverkið í kring um hana og eftirlit, auk þess að skoða löggjöf og mögulega framkvæmd slíkrar starfsemi erlendis. Fulltrúi ráðuneytisins mun leiða vinnuna…Lesa meira

true

Tónar á ferð – ný söngbók eftir Valgerði Jónsdóttur

Út er komin bókin „Tónar á ferð“ – Söngbók eftir tónlistarkonuna Valgerði Jónsdóttur, Bæjarlistamann Akraness 2021. Í bókinni er að finna nótur að lögum sem Valgerður hefur samið á undanförnum árum og útsett fyrir barna- og ungmennakóra. Valgerður er einnig höfundur flestra af ljóðunum við lögin en einnig eru ljóð eftir Brynju Einarsdóttur, Guðmund Kristjánsson,…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu gegn Fjölni

Skallagrímur og Fjölnir áttust við í Subway deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í Fjósinu í Borgarnesi og lauk leiknum með stórsigri Fjölnis, lokatölur 70:105. Það var rétt rúmlega fyrstu mínútuna í leiknum sem jafnt var með liðunum en síðan keyrði Fjölnir yfir heimakonur. Eftir fimm mínútna leik var munurinn þó aðeins…Lesa meira