Skallagrímur hættir þátttöku í Subway deild kvenna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms hefur tekið þá ákvörðun að draga kvennalið félagsins úr keppni í Subway deildinni. Í yfirlýsingu sem send var Skessuhorni í gærkvöldi kemur fram að yfirstandandi tímabil hafi einkennst af erfiðleikum við mönnun á liðinu og ófyrirséðum breytingum. Þá hafi jafnframt ekki tekist að manna að fullu meistaraflokksráð og stjórn deildarinnar sem er forsenda fyrir framgangi starfseminnar:\r\n\r\n„Markmið körfuknattleiksdeildarinnar verður eftir sem áður að vinna að því að efla meistaraflokka félagsins til framtíðar og byggist það á góðu yngri flokka starfi. Unnið verður að því á næstu mánuðum að efla innra starf deildarinnar, hlúa að og bæta starf yngri flokka enn betur auk þess að styðja við meistaraflokk karla og stefna á þátttöku kvennaliðs á næsta tímabili. Sú ákvörðun að draga kvennaliðið úr keppni er þungbær, en stjórn telur af ýmsum ástæðum sem ekki verða raktar frekar nauðsynlegt að grípa til þessara ráðstafana með hag klúbbsins að leiðarljósi. Stjórn vill þakka leikmönnum kvennaliðsins og öðrum sem hafa haft aðkomu að því starfi í vetur fyrir vel unnin störf,“ segir í yfirlýsingunni.",
"innerBlocks": []
}
Skallagrímur hættir þátttöku í Subway deild kvenna - Skessuhorn